Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1328/2020

Nr. 1328/2020 9. desember 2020

AUGLÝSING
um umferð á Húsavík í Norðurþingi.

Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur, í samræmi við 1. og 3. mgr. 84. gr. umferð­ar­laga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og Vega­gerðar­innar, ákveðið eftirfar­andi fyrir hönd Norðurþings:

 

Staðsetningar og heiti umferðarmerkinga á Húsavík:

 

20 km/klst. hámarkshraði – B28.20.

Að hámarkshraði verði 20 km/klst.:

 

20 km/klst. takmörkun hámarkshraða lokið – B29.20.

Að takmörkun hámarkshraða sé lokið.

 

30 km/klst. hámarkshraði – B28.30.

Að hámarkshraði verði takmarkaður við 30 km/klst. af:

Þjóðvegi 85 norðan Húsavíkur inn á Héðinsbraut.
Þjóðvegi 85 norðan Húsavíkur inn að Traðargerði ofan tjaldsvæðis.
Suðurfjöruvegi inná hafnarsvæði við Árgil.
Mararbraut (Stangarbakka) inn á Garðarsbraut (við brú yfir Árgil).
Mararbraut (Stangarbakka) inn á Uppsalaveg.
Mararbraut (Stangarbakka) inn á Múlaveg.
Múlavegi inn á Garðarsbraut.
Bílastæði við Olís inn á Garðarsbraut.
Þverholti inn á Garðarsbraut.
Þverholti inn á Laugarholt.
Þverholti inn á Baughól.
Þverholti inn á Langholt.
Þverholti inn í Heiðargerði.
Þverholti inn í Háagerði.
Þverholti inn í Breiðagerði.
Þverholti inn í Litlagerði.
Höfðavegi inn í Höfðabrekku.
Höfðavegi inn í Sólbrekku.
Höfðavegi inn í Lyngbrekku.

 

30 km/klst. takmörkun hámarkshraða lokið – B29.30.

Að takmörkun hámarkshraða sé lokið af:

Héðinsbraut norðan Húsavíkur inn á Norðausturveg (þjóðveg 85).
Traðargerðisvegi ofan tjaldsvæðis inn á Norðausturveg (þjóðveg 85).
Árgil inn á Suðurfjöruveg við hafnarsvæði.
Garðarsbraut inn á Mararbraut (Stangarbakka) (við brú yfir Árgil).
Uppsalavegi inn á Mararbraut (Stangarbakka).
Múlavegi inn á Mararbraut (Stangarbakka).
Bílastæði við Olís inn á Mararbraut (Stangarbakka).
Bílaleiguvegi inn á Mararbraut (Stangarbakka).
Garðarsbraut inn á Þverholt.
Laugarholti inn á Þverholt.
Baughól inn á Þverholt.
Langholti inn á Þverholt.
Heiðargerði inn á Þverholt.
Háagerði inn á Þverholt.
Breiðagerði inn á Þverholt.
Litlagerði inn á Þverholt.
Höfðavegi norðan Laugarbrekku.
Höfðabrekku inn á Höfðaveg.
Sólbrekku inn á Höfðaveg.
Lyngbrekku inn á Höfðaveg.

 

50 km/klst. hámarkshraði – B26.50.

Að hámarkshraði verði takmarkaður við 50 km/klst. af:

Norðausturvegi (þjóðvegi 85) sunnan Húsavíkur (við sláturhús Norðlenska í norðurátt).
Norðausturvegi (þjóðvegi 85) inn á Héðinsbraut norðan Húsavíkur (við Gónhól til suðurs).
Þeistareykjavegi við aðalspennistöð ofan við Litlagerði.

 

70 km/klst. hámarkshraði – B26.70.

Norðausturvegi (þjóðvegi 85) sunnan Húsavíkur (við afmörkun þéttbýlis í norðurátt).
Norðausturvegi (þjóðvegi 85) sunnan Húsavíkur (við sláturhús Norðlenska í suðurátt).
Norðausturvegi (þjóðvegi 85) inn á Héðinsbraut norðan Húsavíkur (við gatnamót Traðar­gerðis til suðurs).
Norðausturvegi (þjóðvegi 85) norðan Húsavíkur (við afmörkun þéttbýlis í suðurátt).

 

Biðskylda – A06.11.

Að biðskylda verði af:

Stakkholti inn í Lyngholt.
Stekkjarholti inn í Lyngholt.
Stekkjarholti inn í Langholt.
Lágholti inn í Langholt.
Aðkomuvegi Sjóbaða inn á Höfðaveg.
Þjónustuvegi Sjóbaða inn á Höfðaveg.
Ostakarsvegi inn á Höfðaveg.
Fossvöllum inn á Garðarsbraut.
Lyngbrekku inn á Höfðaveg.
Sólbrekku inn á Höfðaveg.
Höfðabrekku inn á Höfðaveg.
Höfðavegi að sunnan inn á Laugarbrekku.
Höfðavegi að norðan inn á Laugarbrekku.
Höfða 5a inn á Höfða (við Val ehf.).
Olíubryggju inn á Norðurgarðsveg til móts við Naustagil.
Stórhól til suðurs við Stórhól 33.
Stórhól inn á Baughól.
Baughól inn á Baughól við Baughól 33.
Uppsalavegi inn á Baughól við Uppsalaveg 33.
Ketilsbraut inn í Auðbrekku.
Útgarði inn á Ketilsbraut.
Pálsgarði inn á Ketilsbraut.
Pálsgarði inn í Auðbrekku.
Ketilsbraut inn á Vallholtsveg til norðurs.
Ketilsbraut inn á Vallholtsveg til suðurs.
Ketilsbraut inn á Stóragarð til norðurs.
Ketilsbraut inn á Stóragarð til suðurs.
Ketilsbraut (við hótel) inn á Stóragarð.
Ketilsbraut (við hótel) inn á Miðgarð.
Stóragarði inn á Miðgarð til suðurs (við íþróttahús).
Miðgarði inn á Vallholtsveg við gatnamót Stóragarðs.
Vallholtsvegi inn á Miðgarð við gatnamót Stóragarðs.
Miðgarði inn á Garðarsbraut (við Naustið).
Skólagarði inn á Ásgarðsveg.
Grundargarði inn á Ásgarðsveg.
Árgilsvegi inn á Suðurfyllingu til vesturs við gatnamót Suðurfjöruvegar.
Suðurfyllingu að Árgili til austurs við gatnamót Suðurfjöruvegar.
Brávöllum inn á Fossvelli.
Iðavöllum inn á Fossvelli.
Baughól inn á Fossvelli.
Túngötu inn á Uppsalaveg.
Túngötu inn á Árgötu.
Uppsalavegi inn á Baughól til austurs.
Uppsalavegi inn á Baughól til vesturs.
Holtagerði inn á Uppsalaveg.
Urðargerði inn í Breiðagerði.
Brúnagerði inn í Breiðagerði.
Hraunholti til austurs við Hraunholt 10.
Hraunholti til norðurs við gatnamót Lágholts.
Hjarðarhól inn á Baughól.
Breiðagerði inn í Þverholt.
Langholti inn í Þverholt.
Árholti inn í Laugarholt.
Álfhól inn á Baughól.
Baldursbrekku inn á Héðinsbraut.
Höfðabrekku inn á Héðinsbraut.
Laugarbrekku inn á Héðinsbraut.
Auðbrekku inn á Héðinsbraut.
Naustagili inn á Héðinsbraut.
Stóragarði inn á Garðarsbraut.
Garðarsbraut inn á Mararbraut (við Skóbúð Húsavíkur).
Uppsalavegi inn á Mararbraut (Stangarbakka).
Uppsalavegi inn á Garðarsbraut (austur/vestur).
Ásgarðsvegi inn á Garðarsbraut.
Árgötu inn á Garðarsbraut.
Heiðargerði inn í Þverholt.
Háagerði inn í Þverholt.
Litlagerði inn í Þverholt.
Skálabrekku inn á Stóragarð.
Traðargerðisvegi ofan tjaldsvæðis inn á Norðausturveg (þjóðveg 85).
Búðarárgilsvegi inn á Garðarsbraut.

 

Stöðvunarskylda – B19.11.

Að stöðvunarskylda verði af:

Vallholtsvegi inn á Garðarsbraut.
Hjarðarhól inn á Garðarsbraut.

 

Gangbrautarmerkingar – D02.11.

Að gangbrautarmerki verði beggja vegna gangbrautar yfir:

Garðarsbraut við Garðarsbraut 56 (Skarpur).
Garðarsbraut við Garðarsbraut 42 (Hulduhóll).
Garðarsbraut við gatnamót Miðgarðs.
Stóragarð við gatnamót Garðarsbrautar.
Garðarsbraut við Garðarsbraut 2 (Formannshús).
Héðinsbraut sunnan gatnamóta Auðbrekku og Laugarbrekku.
Auðbrekku við gatnamót Héðinsbrautar.
Hafnarstétt til móts við Gamla Bauk og Langaneshús.
Héðinsbraut (norðan gatnamóta við Laugarbrekku/Auðbrekku).
Héðinsbraut (sunnan gatnamóta við Laugarbrekku/Auðbrekku).
Laugarbrekku til móts við Laugarbrekku 9.
Laugarbrekku við gatnamót Héðinsbrautar.
Héðinsbraut við N1.
Vallholtsveg við gatnamót Garðarsbrautar.
Garðarsbraut við Garðarsbraut 5.
Garðarsbraut gegnt Húsavíkurkirkju.
Ketilsbraut sunnan gatnamóta við Stóragarð (við kirkju).
Ketilsbraut sunnan gatnamóta við Stóragarð (við hótel).
Garðarsbraut við Norðlenska (Hafnarstétt 25-31).
Garðarsbraut austan gatnamóta Garðarsbrautar/Mararbrautar (við bakarí).
Miðgarð sunnan við gatnamót Ketilsbrautar.
Miðgarð við gatnamót Garðarsbrautar.
Ásgarðsveg við gatnamót Garðarsbrautar.
Ásgarðsveg við gatnamót Skólagarðs.
Garðarsbraut við gatnamót Árgötu (Garðarsbraut 25).
Garðarsbraut norðan við gatnamót Fossvalla.
Fossvelli við gatnamót Garðarsbrautar.
Þverholt austan við gatnamót Garðarsbrautar.
Þverholt vestan við gatnamót Langholts.
Grundargarð við Grundargarð 13.
Mararbraut við Mararbraut 23.
Mararbraut norðan við gatnamót við Múlaveg.
Norðausturvegur við gatnamót að Þverholti.

 

Gangbrautir.

Að málaðar verði gangbrautir yfir:

Garðarsbraut við Garðarsbraut 56 (Skarpur).
Garðarsbraut við Garðarsbraut 42 (Hulduhóll).
Garðarsbraut við gatnamót Miðgarðs.
Stóragarð við gatnamót Garðarsbrautar.
Garðarsbraut við Garðarsbraut 2 (formannshús).
Héðinsbraut sunnan gatnamóta Auðbrekku og Laugarbrekku.
Auðbrekku við gatnamót Héðinsbrautar.
Hafnarstétt til móts við Gamla Bauk og Langaneshús.
Héðinsbraut (norðan gatnamóta við Laugarbrekku/Auðbrekku).
Héðinsbraut (sunnan gatnamóta við Laugarbrekku/Auðbrekku).
Laugarbrekku til móts við Laugarbrekku 9.
Laugarbrekku við gatnamót Héðinsbrautar.
Héðinsbraut við N1.
Vallholtsveg við gatnamót Garðarsbrautar.
Garðarsbraut við Garðarsbraut 5.
Garðarsbraut gengt Húsavíkurkirkju.
Ketilsbraut sunnan gatnamóta við Stóragarð (við kirkju).
Ketilsbraut sunnan gatnamóta við Stóragarð (við hótel).
Garðarsbraut við Norðlenska (Hafnarstétt 25-31).
Garðarsbraut austan gatnamóta Garðarsbrautar/Mararbrautar (við bakarí).
Miðgarð sunnan við gatnamót Ketilsbrautar.
Miðgarð við gatnamót Garðarsbrautar.
Ásgarðsveg við gatnamót Garðarsbrautar.
Ásgarðsveg við gatnamót Skólagarðs.
Garðarsbraut við gatnamót Árgötu (Garðarsbraut 25).
Garðarsbraut norðan við gatnamót Fossvalla.
Fossvelli við gatnamót Garðarsbrautar.
Þverholt austan við gatnamót Garðarsbrautar.
Þverholt vestan við gatnamót Langholts.
Grundargarð við Grundargarð 13.
Mararbraut við Mararbraut 23.
Mararbraut norðan við gatnamót við Múlaveg.
Norðausturveg við gatnamót að Þverholti.

 

Einstefna – D07.11.

Að einstefna verði af:

Garðarsbraut inn á Uppsalaveg til austurs.
Miðgarði inn á bílastæði við Garðarsbraut 21.
Fossvöllum inn á Sólvelli.

 

Innakstur bannaður – B01.21.

Að innakstur verði bannaður af:

Baughól inn á Uppsalaveg til vesturs (færa skilti norðan Uppsalavegar).
Garðarsbraut inn á bílastæði við Landsbankann (gengt samkomuhúsi).
Iðavöllum inn á Reykjaheiðarveg (við Bala).
Fossvöllum inn á Reykjaheiðarveg (við Tungu).

 

Bannað að stöðva ökutæki – B24.11.

Að bannað verði að stöðva ökutæki við:

Garðarsbraut 15 (bakarí).
Garðarsbraut 5-9 (bókabúð að Hvalasafni).

 

Vegvísar F03.51.

Að vegvísar verði við gatnamót:

Stangarbakka gengt Þverholti. Aksturstefnumerki verði til norðurs (Húsavík) og suðurs (Akur­eyri).

 

E. Þjónustumerki.

 

Tjaldsvæði E05.61 – Hjólhýsasvæði E05.62.

Að tjaldsvæði verði merkt við afleggjara inn á tjaldsvæði af Norðausturvegi (þjóðvegi 85).

 

Losun skolptanka E02.35.

Að losun skolptanka verði merkt við losunarbrunn við tjaldsvæði á Húsavík.

 

Fuglaskoðun E02.66.

Að fuglaskoðunarskýli við Kaldbakstjarnir verði merkt við afleggjara af Norðausturvegi (þjóð­vegi 85).

 

Golfvöllur E07.51.

Að golfvöllur verði merktur við afleggjara að Katlavelli af Norðausturvegi (þjóðvegi 85).

 

Skotsvæði E07.55.

Að skotsvæði verði merk við afleggjara af Norðausturvegi (þjóðvegi 85) að skotsvæði.

 

Ofangreint sé merkt með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum, í samræmi við reglu­gerð nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra, með síðari breytingum.

 

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

 

Norðurþingi, 9. desember 2020.

 

Gunnar Hrafn Gunnarsson, framkvæmda- og þjónustufulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2020