Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1598/2023

Nr. 1598/2023 12. desember 2023

GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Dalvíkur.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs Dalvíkur (SD) ákvarðast af lögum um bruna­varnir nr. 75/2000 og reglu­gerðum settum samkvæmt þeim.

 

2. gr.

SD innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

 

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almanna­hagsmunum og/eða fellur að markmiðum sem SD eru sett í stofnsamningi.

 

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 beitt skal eigandi eða umráða­maður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 15.220 kr.

 

5. gr.

Öryggisvaktir á mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á við­komandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimt er að lágmarki 60.882 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.220kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

 

6. gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mann­virki. Innheimt er 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 60.882 kr., auk 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.

 

7. gr.

Dagsektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkvi­liðs­stjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimt er 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

8. gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar, að lágmarki 30.904 kr. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

 

9. gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 15.220 kr., fyrir hverja byrjaða klukku­stund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 60.882 kr., auk 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfs­mann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um bruna­varnir.

 

10. gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráð­stafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð. Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 15.220 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á bruna­vörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar sbr. 9. gr. þessarar gjald­skrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

11. gr.

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins sam­kvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa aðildar­sveitarfélaga samkvæmt stofnsamningi, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né fram­kvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu. Fast tímagjald sam­kvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 15.220 kr. fyrir lög­bundin verkefni. Að teknu tilliti til sam­keppnis­sjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólar­hringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukku­­stund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skil­greind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 20.547 kr. nema annað sé sérstak­lega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr., er að lág­marki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 164.375 kr.

 

12. gr.

Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mann­virkjum og farartækjum með sér­hæfðum björgunarbúnaði. Slökkvistörf og viðbúnaður við meng­unar­óhöppum á sjó og í lofti falla ekki undir lögin. Lögin ná því til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri. Lögin taka ekki til eldvarna í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum öku­tækjum. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 164.375 kr., auk 20.547 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

13. gr.

Viðbúnaður vegna upphreinsunar.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á meng­unaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skuli beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 164.375 kr., auk 20.547 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

14. gr.

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 164.375 kr., auk 20.547 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

15. gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 20.547 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

16. gr.

Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svip­uðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja sam­keppnis­sjónarmið. Oftast er um að ræða dælubíla t.d. vegna kvikmyndagerðar eða ein­hverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endur­skoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki SD skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimt er að lágmarki 60.882 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.

 

17. gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir. Ef óskað er slíkrar fylgdar skal inn­heimt að lágmarki 60.882 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

 

18. gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við stofnsamning SD. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 60.882 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.220 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­­stund umfram fjóra tíma. Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvik­­mynda­­töku, mót­töku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

 

IV. KAFLI

Innheimta.

19. gr.

SD annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjald­skránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á ein­daga.

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta, sem og aðgerða til að knýja fram úr­bætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. til og með 10. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskránni miðast við byggingarvísitölu, grunnur 2021, september 2022 (109,0 stig) sem uppreiknast í september ár hvert miðað við gildandi byggingarvísitölu.

 

V. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

20. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í lögum nr. 75/2000 og reglu­gerðum settum samkvæmt þeim, er samin og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitar­stjórnarlaga nr. 138/2011. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2024. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1581/2022.

Samþykkt í byggðarráði Dalvíkurbyggðar 23. nóvember 2023.

Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 28. nóvember 2023.

 

Dalvíkurbyggð, 12. desember 2023.

 

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2023