Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 432/2021

Nr. 432/2021 21. apríl 2021

REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 729/2020, um línuívilnun.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skal línuívilnun í þorski takmarkast við 1.246 tonn, 700 tonn af ýsu, 250 tonn af steinbít, 15 tonn af gullkarfa, 14 tonn af keilu og 50 tonn af löngu, miðað við óslægðan fisk, sem skiptast þannig innan fiskveiðiársins:

Tímabil Þorskur Ýsa Steinbítur Gullkarfi Keila Langa
1.  september – nóvember   384 255   12  4  7 21 
2.  desember – 11. febrúar   355 224   38  2  2  9
3.  12. febrúar – maí   507 130 152  5  2 13 
4.  júní – ágúst      0   92   49  5  3  7
Samtals: 1.246  700 250 15  14  50 

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. apríl 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. apríl 2021