Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 886/2016

Nr. 886/2016 13. október 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Innleiðing.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð (ESB) 2016/5 frá 5. janúar 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar framkvæmd grunnkrafna um umhverfisvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56 frá 18. mars 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 723.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 13. október 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 28. október 2016