1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Aðeins skipum sem hafa aflamark í loðnu er heimilt að stunda loðnuveiðar. Veiðar umfram aflamark í loðnu varða gjaldtöku samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólöglegs sjávarafla.
Leyfilegur hámarksafli íslenskra loðnuveiðiskipa á loðnuvertíðinni er sem hér segir:
A |
B |
C |
Lestir |
Lestir |
Lestir |
185.576 |
9.836 |
175.740 |
Skýringar á töflu:
- Leyfilegur heildarafli.
- Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
- Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2018.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.
|