Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1129/2018

Nr. 1129/2018 11. desember 2018

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 15. desember 2021.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 11. desember 2018.

Katrín Jakobsdóttir.

Ágúst Geir Ágústsson.


B deild - Útgáfud.: 13. desember 2018