Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 233/2020

Nr. 233/2020 12. mars 2020

REGLUGERÐ
um (17.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. bætist nýr töluliður, 54. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/386 frá 9. mars 2020 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB að því er varðar skrána yfir þriðju lönd eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur til Sambandsins á kjötafurðum og með­höndluðum mögum, þvagblöðrum og þörmum, og um breytingu á II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar skrána yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á kjöti til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/386, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð nr. 232/2020 um (10.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópu­sambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breyt­ingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. mars 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. mars 2020