Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 23/2017

Nr. 23/2017 6. janúar 2017

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 stað­fest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu náms­brauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntöku­skilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef ráðuneytisins http://www.menntamalaraduneyti.is/menntamal/framhaldsskolar/stadfestar-namsbrautarlysingar/.

2. gr.

Málabraut, stúdent – hæfniþrep 3 (17-251-3-6)
Náttúrufræðibraut, stúdent – hæfniþrep 3 (17-250-3-6)

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 6. janúar 2017.

Illugi Gunnarsson.

Ásta Magnúsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. janúar 2017