1. gr.
Gildissvið og markmið.
Reglur þessar gilda um málsmeðferðina við veitingu utanríkisráðuneytisins á styrkjum úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem er verkefni innan ramma núverandi þróunarsamvinnuáherslna.
Markmiðið með reglunum er að tryggja jafnræði, hlutlægni, gagnsæi og samkeppnissjónarmið við úthlutun og umsýslu styrkja. Einnig skulu styrkveitingar samræmast stefnu stjórnvalda um framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, sbr. 6. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu, nr. 121/2008, ákvæðum 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og reglugerð um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018.
Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnum tillögum þriggja manna matshóps sem skipaður er einum fulltrúa frá utanríkisráðuneytinu og tveimur óháðum þróunarsamvinnusérfræðingum. Matshópur skal skipaður af ráðherra til eins árs í senn.
Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna og til ákveðins tíma hverju sinni.
2. gr.
Hlutverk sjóðsins.
Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu. Markmiðið er að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í fátækum ríkjum heims í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Styrkt verkefni skulu vera til hagsbóta og miða að því að skapa verðmæti í þróunarlöndum.
Styrkt verkefni skulu jafnan styðja við heimsmarkmið nr. 8 um sjálfbæran hagvöxt og mannsæmandi atvinnutækifæri, sem og hafa tengingu við önnur þau heimsmarkmið sem Ísland leggur áherslu á í þróunarsamvinnu sinni.
3. gr.
Auglýsingar.
Að minnsta kosti einu sinni á ári auglýsir utanríkisráðuneytið opinberlega fyrirhuguð framlög úr sjóðnum og kallar eftir umsóknum frá styrkhæfum aðilum.
Í auglýsingum skal meðal annars vísa til úthlutunarreglna þessara og úthlutunarskilmála sem eiga við, sbr. 6. gr. Í auglýsingu skal gerð grein fyrir markmiðum og áherslum með veitingu umræddra framlaga, þeim fjárhæðum sem í boði eru, hvaða skilyrði umsækjandi þarf að uppfylla til að eiga rétt á framlagi, á hvaða formi skuli skila inn umsókn, þeim gögnum sem fylgja skulu umsókn, tímafresti til að skila inn umsókn og áætluðum afgreiðslutíma umsókna.
Tekið skal fram í auglýsingu að umsækjandi um framlag skuli lýsa með greinargóðum hætti markmiðum verkefnis sem liggur til grundvallar umsókn, áætlun um framkvæmd þess og tíma- og kostnaðaráætlun, auk þess að veita aðrar upplýsingar sem taldar eru nauðsynlegar. Njóti umsækjandi annarra styrkja eða framlaga vegna verkefnisins skuli hann gera grein fyrir þeim. Þá skal taka fram að einungis umsóknir sem uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilmála verði teknar til greina.
4. gr.
Styrkhæfir aðilar og samstarfsaðilar þeirra.
Styrkveitingar úr sjóðnum eru takmarkaðar við atvinnulíf og umsækjendur geta einvörðungu verið opinberlega skráð fyrirtæki sem ekki teljast ríkisaðilar, t.a.m. einstaklingsfyrirtæki, félög og sjálfseignarstofnanir. Fyrirtæki skulu hafa starfað í a.m.k. eitt ár.
Verkefni þurfa að vera framkvæmd í samvinnu við samstarfsaðila í tilteknu þróunarlandi. Einnig geta fleiri samstarfsaðilar komið að verkefninu s.s. háskólar og félagasamtök. Gjaldgeng samstarfslönd eru þau lágtekjuríki og lágmillitekjurríki skv. lista þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD, DAC) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar sem utanríkisráðuneytið birtir á heimasíðu sinni.
Verkefni, sem sótt er um styrk fyrir, skulu tengjast kjarnastarfsemi fyrirtækis. Einnig skal umsækjandi, í samræmi við 8. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu, nr. 121/2008, geta sýnt fram á að hann uppfylli viðurkenndar kröfur alþjóðasamfélagsins á sviði þróunarsamvinnu, m.a. þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar, hvað varðar þekkingu, gæði tæknilegra lausna, almenna getu og fjárhagslega burði til að taka þátt í alþjóðlegum þróunarsamvinnuverkefnum.
Umsækjendur þurfa að uppfylla þær kröfur um meðferð og vörslu fjármuna á sviði þróunarsamvinnu sem Ríkisendurskoðun gerir. Leggja þarf fram staðfestan ársreikning fyrirtækis, svo og staðfest gögn um að fyrirtæki sé í skilum með opinber gjöld og lífeyrisgreiðslur.
Þá er miðað við að fyrirtæki staðfesti að það hafi undirgengist að stuðla að ábyrgum viðskiptaháttum t.d. með aðild að hnattrænu samkomulagi Sameinuðu þjóðanna um siðferði og ábyrgð í viðskiptum (UN Global Compact), eða í samhengi við önnur alþjóðleg viðmið um samfélagsábyrgð og ábyrga starfshætti.
5. gr.
Umsóknir.
Umsókn skal skilað á þar til gerðu umsóknareyðublaði og skýra hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum.
Umsókn skulu m.a. fylgja eftirtalin gögn og upplýsingar:
- upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, aðra þátttakendur og samstarfsaðila,
- lýsing á kjarnastarfsemi fyrirtækis, svo og kunnáttu og reynslu af framkvæmd sambærilegra verkefna,
- nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og markhóp, ásamt tíma- og verkáætlun,
- fjárhagsáætlun, þar sem koma fram m.a. upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um,
- staðfesting fyrirtækjaskrár um löglega skráningu fyrirtækis,
- ársreikningur staðfestur af löggiltum endurskoðanda þegar um er að ræða íslenskt fyrirtæki,
- ársreikningur erlends samstarfsaðila, staðfestur af opinberri endurskoðunarstofnun sem er aðili að INTOSAI, eða endurskoðunarfyrirtæki sem starfar skv. alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum (IFAC), þegar um er að ræða styrki hærri en fjórar milljónir kr.,
- staðfest gögn um að fyrirtæki sé í skilum með opinber gjöld og lífeyrisgreiðslur,
- upplýsingar um eigendur og æðstu stjórnendur fyrirtækis,
- nafnalisti yfir skipan stjórnar fyrirtækis,
- stefna varðandi samfélagslega ábyrgð/siðareglur,
- yfirlýsing um minniháttar aðstoð (de minimis), undirrituð,
- staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.
6. gr.
Úthlutunarskilmálar.
Auk þeirra krafna sem gerðar eru til umsækjenda í 3., 4. og 5. gr. reglna þessara, svo og krafna sem leiða má af 8. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu, þá gilda eftirfarandi úthlutunarskilmálar um styrkveitingar skv. reglum þessum:
- Þróunarmarkmið í samstarfslandi, þar sem verkefnið mun verða framkvæmt, þurfa ávallt að vera meginmarkmið verkefnis og í samræmi við áætlanir og þarfir samstarfslands.
- Öll verkefni þurfa að taka tillit til mannréttinda-, jafnréttis- og umhverfissjónarmiða, sem eru sérstök áhersluefni í þróunarsamvinnu Íslands. Tryggt skal vera að verkefni valdi ekki umhverfis- eða félagslegum skaða á neinn hátt.
- Verkefni þurfa að fela í sér skýrt viðbótargildi (e. additionality), þ.e. samstarfsverkefni sem ekki kæmu til framkvæmda eða fjármögnunar á venjulegum markaðsforsendum.
- Verkefni hafi mælanleg þróunaráhrif. Skýr krafa er gerð um vöktun, eftirlit og úttektir á árangri í öllu þróunarstarfi.
- Útflutnings- eða markaðssetningarverkefni eru ekki styrkhæf, í samræmi við verklagsreglur þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar um opinber framlög til þróunarsamvinnu.
- Verkefni mega ekki leiða til ótilhlýðilegrar röskunar á samkeppni.
- Sjóðurinn mun ekki fjármagna verkefni sem eru á útilokunarlista evrópsku þróunarfjármögnunarstofnananna (EDFI).
- Fylgni við ríkisaðstoðarreglur EES-samningsins sé tryggð eftir því sem við á.
7. gr.
Styrkfjárhæð.
Styrkfjárhæð getur að hámarki numið 200.000 evrum yfir þriggja ára tímabil og má ekki fara umfram 50% af heildarkostnaði verkefnis. Hafi styrkþegi hlotið ríkisstyrk á sama tímabili, annars staðar frá, þá lækkar veittur styrkur, samkvæmt reglum þessum, sem því nemur.
8. gr.
Mat á umsóknum.
Matshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir þróunarsamvinnuáherslur sjóðsins sbr. einkum 2., 4. og 6. gr. reglna þessara. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum viðmiðum:
- gildi og mikilvægi verkefnis fyrir stefnu stjórnvalda á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, sbr. 2. gr. reglna þessara og markmiðum viðkomandi samstarfslanda.
- starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra samstarfsaðila, sbr. 4. gr. reglna þessara,
- líkum á að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
- fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
Umsóknir skulu metnar og þeim gefnar einkunnir á grundvelli gæðaviðmiða sem taka mið af tilgangi sjóðsins og hvort óskað hafi verið, í auglýsingu, eftir styrkumsóknum með tilteknum áherslum. Innbyrðis vægi gæðaviðmiða skal ákveðið fyrirfram fyrir hverja úthlutun og birt á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
Matshópur getur óskað eftir frekari upplýsingum frá umsækjendum ef þörf er á. Við mat á umsóknum er matshóp heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.
9. gr.
Úthlutun.
Matshópur gerir tillögu til ráðherra um úthlutun og ráðstöfun fjár til verkefna. Tillögur skulu vera skriflegar og geyma í stuttu máli almenna lýsingu á framkvæmd og málsmeðferð við tillögugerðina. Sérhverri umsókn skal fylgja stutt umsögn ásamt tillögu um afgreiðslu hennar.
Ráðherra tekur ákvörðun um styrkveitingar á grundvelli framkominna tillagna. Tilkynna skal öllum umsækjendum um afgreiðslu umsóknar.
Utanríkisráðuneytið birtir nöfn styrkþega, upplýsingar um verkefni og upphæð styrks á heimasíðu ráðuneytisins.
10. gr.
Úthlutunarsamningur og úthlutunarskilmálar.
Gerður skal skriflegur samningur um framlag á grundvelli úthlutunarskilmála, sbr. 6. gr. reglna þessara, þar sem tryggð er fullnægjandi skýrslugjöf um framvindu verkefnisins og reikningsskil. Sé framlag til lengri tíma en fjárlagaársins skal í samningi koma fram skýr og bindandi fyrirvari um að áframhaldandi fjárstuðningur við verkefnið sé háður því að fyrir hendi verði fjárheimildir í fjárlögum þeirra ára sem samningur tekur til.
Hefjist verkefni ekki innan árs frá dagsetningu styrkbréfs fellur styrkur niður, nema sérstaklega sé sótt um frest. Umsókn þess efnis skal vera skrifleg og rökstudd.
11. gr.
Framkvæmd og eftirlit.
Framkvæmd styrkts verkefnis er á ábyrgð styrkþega og samstarfsaðila hans. Eftirlit er á hendi þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Fyrirtæki skuli hafa sérstakan bankareikning fyrir stuðning úr sjóðnum. Styrkur úr sjóðnum skal einungis greiddur í tengslum við raunkostnað fyrirtækis eða samstarfsaðila vegna verkefnis. Utanríkisráðuneytinu er heimilt að setja þak á taxta vegna aðkeyptrar þjónustu og skal slíkt vera tilgreint í samningi. Skýrt verður í samningi, vegna styrkja, að utanríkisráðuneytið og Ríkisendurskoðun hafi aðgang að öllum viðeigandi gögnum til að endurskoða fjárreiður verkefnisins.
Styrkþegum er skylt að kynna ráðuneytinu eða Ríkisendurskoðun stöðu verkefnis sé þess óskað. Heimilt er ráðuneytinu að stöðva greiðslu styrkveitinga og krefjast endurgreiðslu skili ábyrgðaraðili verkefnis ekki inn framvinduskýrslum, miklar breytingar verða á verkefni, eða vakni grunur um að fé sé ekki nýtt samkvæmt verkefnaskjali og fjárhagsáætlun. Áður en ákvörðun um slíkt er tekin skal styrkþega gefinn kostur á að lýsa viðhorfi sínu til málsins. Styrkþegi skal gera allar viðeigandi ráðstafanir til að fyrirbyggja hvers konar spillingu í tengslum við nýtingu fjármuna.
Að verkefni loknu skal styrkþegi kynna ráðuneytinu árangur og niðurstöður þess með skriflegri skýrslu.
12. gr.
Fjármálastjórnun.
Beiðni um frávik frá samþykktri fjárhagsáætlun skal send til ráðuneytisins áður en til útgjalda kemur. Styrkþegum er þó heimilt að færa sem nemur 10% af útgjöldum á meginútgjaldaliðum milli liða og ára. Valdi tilfærslurnar verulegum breytingum á verkefninu skal leita samþykkis ráðuneytisins.
Styrkþegar skulu setja stefnu um afstöðu sína og ráðstafanir gegn spillingu og siðareglur varðandi meðferð fjár. Styrkfé má aldrei renna beint til opinberra starfsmanna erlendra ríkja í því skyni að greiða fyrir framgangi verkefnis. Styrkþegar eru jafnframt ábyrgir fyrir því að þjálfa og upplýsa sína samstarfsaðila um stefnu, siðareglur og aðra slíka staðla sem samstarfsaðilar þurfa að fara eftir. Styrkþegum er skylt að setja inn ákvæði um afstöðu og ráðstafanir gegn spillingu í þá samninga sem þeir gera við verktaka og undirverktaka.
Styrkþegar skulu án tafar upplýsa ráðuneytið skriflega um ólögmætar gjörðir, spillingu eða misnotkun fjár sem styrkþegar komast á snoðir um eða þeim hefur verið bent á, hvort sem að slíkt á sér stað innan fyrirtækja styrkþega sjálfra eða samstarfsaðila þeirra. Styrkþegar skulu rannsaka og, ef nauðsyn ber til, grípa til viðeigandi ráðstafana gegn einstaklingum sem verða uppvísir að spillingu eða misnotkun fjár. Slíkar ráðstafanir geta til dæmis verið lögsókn, kæra til lögreglu, kvörtun eða tilkynning til eftirlitsaðila. Styrkþegar skulu halda ráðuneytinu upplýstu um þær ráðstafanir sem gripið er til, framvindu úttekta og rannsókna, og láta ráðuneyti í té lokaskýrslu er slíku ferli er lokið.
Vannýttar styrkupphæðir skulu endurgreiddar ráðuneytinu að verkefni loknu.
13. gr.
Framvinduskýrslur verkefna.
Framvinduskýrslur eru gerðar af framkvæmdaaðilum. Þar er framgangur verkefnis miðað við verkáætlun útlistaður og frávik skýrð. Skýrslurnar skulu byggjast á þeim árangursramma sem settur var fram í verkefnaskjali og vera einfaldar, skýrar og skorinorðar. Framvinduskýrslur skulu m.a. innihalda upplýsingar um aðföng og útgjöld, sem og vöktun verkefna og byggjast á árangursvísum sem settir eru fram í styrkumsókn.
Uppsetning og framsetning framvinduskýrsla er ekki stöðluð. Skýrslur sem notaðar eru við verkefnastjórnun má nota við upplýsingagjöf til ráðuneytisins.
Framvinduskýrslum vegna langtímaverkefna skal skila á að minnsta kosti hálfs árs fresti til verkloka. Jafnframt skal skila ársskýrslum allra verkefna. Greina skal tafarlaust frá aðstæðum sem torvelda framkvæmd verkefnis. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að kalla eftir ítarlegri upplýsingum frá styrkþega um vöktun og stöðu verkefna.
14. gr.
Lokaskýrslur verkefna.
Í lokaskýrslu skal gerð grein fyrir aðföngum og útgjöldum verkefnisins, auk þess sem greint skal frá framvindu þess yfir verkefnistímann. Koma skal fram hvort og hvernig þau markmið sem sett voru með verkefninu hafi náðst og mat lagt á þróunaráhrif þeirra. Skila skal lokaskýrslu til ráðuneytisins, að öðru jöfnu, eigi síðar en þremur mánuðum eftir verklok.
15. gr.
Greinargerð ráðherra um framlög.
Ráðherra gerir grein fyrir fyrirhuguðum útgjöldum vegna framlaga í fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga, sbr. 19. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og í árskýrslu sinni skv. 62. gr. sömu laga.
16. gr.
Úttekt á starfsemi sjóðsins.
Óháð ytri úttekt fari fram á starfsemi sjóðsins um mitt ár 2021. Þar verði lagt mat á þau verkefni sem hlotið hafa styrk, framkvæmdastöðu þeirra og líkur á árangri, einkum í tengslum við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
17. gr.
Lagagrundvöllur og gildistaka.
Reglur þessar sem settar eru með vísan til 5. gr. reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018, sbr. 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015 og á grundvelli 10. gr., sbr. 6. og 8. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu nr. 121/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. nóvember 2018.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
|