Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 42/2023

Nr. 42/2023 12. janúar 2023

AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2023.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2023 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á einstak­linga. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2023. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en alman­aks­árið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. janúar 2023.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2023