Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 222/2019

Nr. 222/2019 7. febrúar 2019

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Alþýðuveldið Kóreu nr. 160/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þving­unaraðgerðir varðandi Alþýðulýðveldið Kóreu nr. 160/2015:

  1.21 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/293 frá 26. febrúar 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 1.21.
  1.22 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/331 frá 5. mars 2018 um framkvæmd ákvörð­unar (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 1.22.
  1.23 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/551 frá 6. apríl 2018 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2016/849 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 1.23.
  2.11 Reglugerð ráðsins (ESB) 2018/285 frá 26. febrúar 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1509 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgiskjal 2.11.
  2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/286 frá 26. febrúar 2018 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) 2017/1509 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgi­skjal 2.12.
  2.13 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/324 frá 5. mars 2018 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) 2017/1509 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgi­skjal 2.13.
  2.14 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/548 frá 6. apríl 2018 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) 2017/1509 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu, sbr. fylgi­skjal 2.14.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 7. febrúar 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 5. mars 2019