Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 943/2018

Nr. 943/2018 10. október 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

1. gr.

B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/773 frá 15. maí 2018 um hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/306, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 110/2018 frá 31. maí 2018. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, 23. ágúst 2018, bls. 53-232.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 10. október 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.


B deild - Útgáfud.: 29. október 2018