Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 275/2013

Nr. 275/2013 21. mars 2013
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Reykjahlíðar.

1. gr.

Hitaveita Reykjahlíðar selur hitaorku frá aðveituæð og dreifikerfi veitunnar samkvæmt ákvæðum gjaldskrár þessarar.

2. gr.

Hitaveita Reykjahlíðar lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn er ætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi eftirlitsmanns hitaveitu.

Hitaveitunni er heimilt að takmarka með hemli vatnsrennsli að húsi eftir því sem þörf krefur og er starfsmönnum hitaveitunnar einum heimilt að breyta stillingu hans.

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða skv. vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns miðað við vatnshita í tengibrunni þar sem stofnæð og heimtaug/dreifikerfi mætast, sem hér segir:

a)

Fyrir vatn 80°C og heitara greiðast

kr.

135

b)

Fyrir vatn 70°-79°C greiðast

kr.

109

c)

Fyrir vatn 69°C og kaldara greiðast

kr.

82

Hitaveitunni er heimilt að færa notendur milli gjaldflokka þar sem einstakar heimtaugar eru það langar að ætla má að um verulega kólnun sé að ræða í þeim.

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp og ef vatnsmælir bilar áætlar hitaveitan vatns­notkunina með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hitaveitan lætur húseigendum í té aukamæla ef þess er óskað.

4. gr.

Fyrir hverja húsveitu (1. mæli) er greitt fast mánaðargjald sem fer eftir stærð mælis sem hér segir:

a)

Fyrir mæli allt að ¾″

kr.

1.178

b)

Fyrir mæli 1″ – 2″

kr.

2.374

c)

Fyrir mæli 3″ og stærri

kr.

4.730

5. gr.

Hitaveitugjöld skv. 3. og 4. gr. verða krafin mánaðarlega, þegar eftir mælaálestur. Þó er heimilt að láta líða lengri tíma en einn mánuð milli álestra og fækka gjalddögum. Óski notandi þess að lesið sé af mæli hans utan reglubundins álestrartíma hitaveitunnar og honum gerður sérstakur reikningur, skal hann greiða fyrir það gjald kr. 1.074.

Gjalddagi hitaveitugjalda er við útsendingu reiknings eða tilkynningar um reiknings­upphæð. Ber gjaldanda að greiða reikninginn í bönkum, sparisjóðum og öðrum greiðslu­stöðum þar sem hitaveitan ákveður. Það eru vanskil ef gjöld fyrir orkunotkun eru ekki greidd innan 30 daga frá útsendingardegi reiknings.

6. gr.

Heimæðagjald Hitaveitu Reykjahlíðar skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Hús 400 – 2.000 m³

kr.   

Fyrir 400 m³

217.620

og fyrir hvern rúmmetra umfram 400 m³

189

Hús stærri en 2.000 m³

519.283

og fyrir hvern rúmmetra umfram 2.000 m³

151

Öll gjöld í þessari grein miðast við utanmál húsa.

 

Stofngjald fyrir hvern mæli umfram einn á sama inntaki er

28.898

Lóðarhafar greiða auk heimtaugargjalds kostnað við lagningu heimæðar frá stofnæð hitaveitu að húsvegg fyrir lengd lagnar umfram 50 metra.

Hitaveita Reykjahlíðar hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með 7 daga fyrirvara.

Allan kostnað við lokun aðrennslis og opnun á ný greiðir sá sem í vanskilum er auk kr. 2.148 í hvert skipti.

7. gr.

Nú eru leyfð afnot af hitaveitunni til annars en húshitunar svo sem heyþurrkunar eða ræktunar og er þá hitaveitunni heimilt að ákveða gjald fyrir þau afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.

8. gr.

Á öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast skattar samkvæmt gildandi reglum á hverjum tíma.

9. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda.

10. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis frá 6. mars 2012 nr. 278.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. mars 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Ólafur Egill Jónsson.

B deild - Útgáfud.: 26. mars 2013