Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1546/2022

Nr. 1546/2022 23. desember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 397/2003 um leigubifreiðar.

1. gr.

Orðin „frá trúnaðarlækni Samgöngustofu“ í 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar falla brott.

 

2. gr.

Orðin „trúnaðarlæknis Samgöngustofu“ í 1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar falla brott.

 

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar:

Í stað orðanna „Öryrkjabandalags Íslands og tryggingayfirlæknis“ kemur: Tryggingastofnunar.

 

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna „trúnaðarlæknis Samgöngustofu“ í 2. málsl. kemur: læknis
  2. Í stað orðanna „trúnaðarlækni Samgöngustofu“ í 3. málsl. kemur: lækni.

 

5. gr.

18. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Veita má leyfishafa heimild til að aka á móti forfallabílstjóra, óski hann þess vegna veikinda, enda beri læknisvottorð með sér að leyfishafi hafi ekki fulla starfsgetu. Leyfishafa er þá heimilt að aka í allt að 6 klst. á dag og skal aksturstími ákveðinn fyrir fram. Forfallabílstjóri má í slíkum tilvikum aka í allt að 12 klst. á dag.

Heimild skv. 1. mgr. má veita til allt að þriggja mánaða á ári en heimilt er að framlengja hana í allt að eitt ár í senn. Heimild skal þó ekki veita lengur en í fjögur ár og skal ekki veita heimild að nýju til meira en samtals þriggja mánaða næstu tólf mánuði.

 

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 9. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 23. desember 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022