Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 417/2017

Nr. 417/2017 19. maí 2017

AUGLÝSING
um afléttingu tímabundinna varnaraðgerða til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

1. gr.

Með vísan til þess að alvarleg afbrigði af fuglaflensuveiru hafa ekki greinst á Íslandi hefur ráðherra, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, ákveðið að fella úr gildi auglýsingu nr. 241/2017 um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með vísan til 8. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. maí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Birgitta Kristjánsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. maí 2017