Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1081/2016

Nr. 1081/2016 8. desember 2016

AUGLÝSING
(III) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 641 frá 8. júlí 2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Sveitarfélagið Skagaströnd.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Skagastrandar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 36 þorskígildistonnum úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar eftir breytingu og áttu hlutdeild í Húnaflóa­rækju 1. september 2016 og 143 þorskígildistonnum auk þess aflamarks sem eftir er af úthlutun fyrra fiskveiðiárs verði skipt hlutfallslega,miðað við allan landaðan botn­fisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðar­lags á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
    Hámarksúthlutun verður 45 þorskígildistonn á skip. Hámarkið gildir um samanlagða úthlutun úr báðum flokkum, þó skal við úthlutun fyrst reikna að fullu byggðakvóta sem úthlutað er vegna innfjarðarrækjuveiða (Húnaflóarækja).
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Langanesbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar og Þórshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Vesturbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Brjánslækjar og Bíldudals með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitar­félagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Sveitarfélagið Ölfus.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggðakvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.

Sveitarfélagið Garður.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Garðs með eftir­farandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 50% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa og 50% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.

Fjallabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Siglufjarðar og Ólafsfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skulu öll skip og bátar sem uppfylla ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar eiga rétt á 2.000 þorskígildiskílóa úthlutun óháð afla þeirra á fiskveiðiárinu 2015/2016. Auk þess skal því aflamarki sem eftir stendur skipt hlutfallslega milli sömu skipa og báta miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016, þó ekki hærra en 20% af því sem eftir stendur, en að hámarki 20 þorskígildistonn.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:  Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 8. desember 2016