Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1265/2016

Nr. 1265/2016 16. desember 2016

GJALDSKRÁ
Bláskógaveitu (hitaveitu), Bláskógabyggð.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Bláskógaveitu frá og með birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.

2. gr.

Afnotagjöld af heita vatninu eru sem hér segir:

Daggjald/mælagjald/hemlagjald:

Stærð mælis/hemils DN 15 mm 37,92  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 20 mm 38,90  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 25 mm 58,92  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 32 mm 61,09  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 40 mm 100,95  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 50 mm 152,14  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 65 mm 186,69  kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 80 mm 217,79  kr./dag

Heitt vatn um rennslismæli, í Biskupstungum:

H1A. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús 107,91  kr./m³
H3A. Garðyrkja/Hitaveitan Brúin 26,59  kr./m³
V4A. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar 80,94  kr./m³

Heitt vatn um hemil, í Biskupstungum:

L1. Garðyrkja 11,62  kr./mínútulítra á dag
L2. Íbúðarhús/sumarhús 95,56  kr./mínútulítra á dag
L3. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar 40,20  kr./mínútulítra á dag
H1D. Hemlagjald 81,80  kr./mínútulítra á dag

Heitt vatn um rennslismæli, í Laugardal:

H1L. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús 107,91  kr./m³
H3L. Garðyrkja 26,59  kr./m³
V4L. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar 80,94  kr./m³

Heitt vatn um hemil, í Laugardal:

H2. Íbúðarhús/sumarhús 95,56  kr./mínútulítra á dag
H4. Mýrarhúsaskógur 95,56  kr./mínútulítra á dag

3. gr.

Tengigjöld Bláskógaveitu eru sem hér segir:

Íbúðarhús að 450 m³ 312.598  kr. m³ umfram m³ 234 kr.
Opinberar byggingar og iðnaðarhús að 450 m³ 312.598  kr. m³ umfram m³ 67 kr.
Gróðurhús og stórnotendur 5.278  kr. mínútulítrinn lágmark 60 m/l
Sumarhús 529.844  kr. fast gjald

4. gr.

Tengigjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við byggingarvísitölu. Grunnvísitala (grunnur 2010) októbermánaðar 2013, 118,7 stig. Bláskógaveitu er heimilt að breyta tengigjöldum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

5. gr.

Lágmarksnotkun fyrir sumarhús er 642 rúmmetrar á ári og ávallt skal greiða fyrir þá notkun samkvæmt gjaldskrá. Fari ársnotkun sumarhúss fram yfir 642 rúmmetra á ári, þá skal greiða fyrir hvern umframrúmmetra skv. gjaldskrá ásamt lágmarksnotkunargjaldi. Fastagjald greiðist óháð notkun.

6. gr.

Lágmarksstilling á hemli verður 3 l/m.

7. gr.

Bláskógaveita hefur rétt til að loka fyrir afhendingu á heitu vatni til húsveitu viðskiptamanns sem vanrækt hefur að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni 7.027 kr.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af veitustjórn Bláskógaveitu þann 28. nóvember 2016 og sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 1. desember 2016, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 70/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. desember 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016