Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1398/2020

Nr. 1398/2020 25. nóvember 2020

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012.

1. gr.

Í stað orðsins „Seltjarnarneskaupstað“ komi: Seltjarnarnesbæ og í stað orðsins „Seltjarnarnes­kaupstaðar“ komi orðið: Seltjarnarnesbæjar.

 

2. gr.

Við 2. gr. gjaldskrárinnar bætist eftirfarandi málsgrein: Stofngjald vegna tengingar og lagningar frárennslislagna frá lóðarmörkum húseiganda að holræsakerfi er kr. 242.156, sbr. samþykkt um frá­veitu í Seltjarnarnesbæ nr. 1101/2020.

 

3. gr.

Breyting þessi sem var samþykkt af bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 25. nóvember 2020, sbr. reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011 og samþykkt um fráveitu í Seltjarnar­nes­bæ nr. 1101/2020, staðfestist hér með skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna, með síðari breytingum og 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2021.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 25. nóvember 2020.

 

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2020