Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 516/2016

Nr. 516/2016 29. maí 2016

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbýu nr. 887/2015.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Líbíu nr. 887/2015 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 frá 31. júlí 2015 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar (SSUÖ) 2011/137, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/478 frá 31. mars 2016 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar (SSUÖ) 2011/137, fylgiskjal 1.1.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/44 frá 18. janúar 2016 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástands­ins í Líbíu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 204/2011, fylgiskjal 2.
  2.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/466 frá 31. mars 2016 um framkvæmd 2. mgr. 21. gr. reglugerðar (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 204/2011, fylgiskjal 2.1.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framan­greindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­fest­ingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og fryst­ingu fjármuna.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal.)


B deild - Útgáfud.: 10. júní 2016