1. gr.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.
Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.
Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.
Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef ráðuneytisins:
https://www.stjornarradid.is/default.aspx?PageID=5ca2fcac-d742-11e6-9409-005056bc4d74.
2. gr.
Heiti námsbrautar |
Raðnúmer |
Alþjóðabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-270-3-6) |
Félagsgreinabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-147-3-6) |
Félags- og hugvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-220-3-6) |
Félagsvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-206-3-6) |
Fótaaðgerðafræði, fótaaðgerðafræðingur, hæfniþrep 3 |
(17-216-3-8) |
Framhaldsskólabraut 1, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 1 |
(17-218-1-1) |
Framhaldsskólabraut 2, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 |
(17-266-2-3) |
Hönnunar- og nýsköpunarbraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-258-3-7) |
Íþróttabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-205-3-7) |
Lyfjatæknabraut, lyfjatæknir, hæfniþrep 3 |
(17-260-3-8) |
Meistaranám í matvælagreinum, iðnmeistaranám, hæfniþrep 4 |
(17-168-4-11) |
Náttúru- og raunvísindabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-217-3-6) |
Opin braut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-145-3-6) |
Opin stúdentsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-267-3-6) |
Opin braut til stúdentsprófs, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-221-3-6) |
Raungreinabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-149-3-6) |
Sérnámsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 |
(17-318-1-12) |
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 |
(17-204-1-12) |
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 |
(17-229-1-12) |
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 |
(17-269-1-12) |
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 |
(17-247-1-12) |
Tanntæknabraut, tanntæknir, hæfniþrep 3 |
(17-248-3-8) |
Tölvubraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-313-3-7) |
Viðskiptabraut, stúdent, hæfniþrep 3 |
(17-148-3-6) |
3. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 8. ágúst 2017.
Kristján Þór Júlíusson.
Ásta Magnúsdóttir.
|