Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 70/2024

Nr. 70/2024 23. janúar 2024

AUGLÝSING
um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 852/2023, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélögum:

 

Akureyrarbær vegna Grímseyjar (löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnslu­skyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Grímseyjar með eftirfarandi breyt­ingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.
  b) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  c) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Árneshreppur (löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Norðurfjarðar með eftir­farandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2023 til 31. ágúst 2024.
  b) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  c) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Dalvíkurbyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags, heimil skipti á tegundum í vinnslu).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Dalvíkur, Árskógssands og Hauganess með eftirfarandi breytingum:

  a) Í stað 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á þannig að 30% úthlutaðs byggðakvóta byggðarlags skal skipt jafnt á alla þá báta úr við­kom­andi byggðarlagi sem sækja um byggðakvóta og uppfylla að öðru leyti ákvæði 1. gr. Óski einhver eftir tilteknu magni kvóta, sem er minna en hann á rétt á samkvæmt ákvæði þessu, þá skiptast eftirstöðvar þess hluta byggðakvótans jafnt á milli hinna umsækjendanna. Skipta skal 70% byggðakvóta byggðarlagsins hlutfallslega miðað við allan landaðan botnfisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. Ekkert skip fær þó meira en 35% af þeim 70% sem skipt er samkvæmt lönduðum afla.
  b) Í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðar­­laga“ og verður: til vinnslu innan sveitarfélagsins.
  c) Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl. svohljóðandi: Þó er vinnsluaðila heimil jöfn skipti, miðað við þorskígildisstuðul, á tegundum við annan vinnsluaðila, og komi þá slík fyrirætlan fram í þeim samningi sem eigandi fiskiskips gerir við fiskkaupanda, og skal sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar.

 

Fjallabyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Ólafsfjarðar og Siglufjarðar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. júlí 2023.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skil­yrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðu­neytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botn­fisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023, þó að hámarki 80 þorsk­ígildistonn á fiskiskip.
  c) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Grýtubakkahreppur (breyting á viðmiðun um úthlutun).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Grenivíkur með eftirfarandi breyt­ingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 1/3 hluti byggðakvótans skiptist jafnt milli þeirra skipa sem sækja um og 2/3 hlutum skal skipt í hlutfalli við úthlutað aflamark sömu skipa 1. september 2023.

 

Húnaþing vestra (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftir­farandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
    a. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 851/2022 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023. Við skiptingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til ofangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildis­stuðla, í Hvammstanga­höfn fiskveiðiárið 2022/2023.
    b. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 852/2023, um úthlutun byggða­kvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024. Skiptingunni verður háttað með þeim hætti að hvert fiskiskip sem uppfyllir framangreind ákvæði hlýtur að lágmarki 10 tonn og eftirstöðvum úthlutað miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2022/2023.
    c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skil­yrðum.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.
  c) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  d) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Ísafjarðarbær (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, afmörkun landaðs afla, löndunarskylda, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Flateyrar, Hnífsdals, Ísa­fjarðar, Suðureyrar og Þingeyrar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnu­skyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.
  b) Ákvæði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lög­aðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2023.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal fyrst úthluta bátum með frístundaleyfi sbr. a-lið, 1 þorsk­ígildis­tonni á bát, 40% af því sem eftir stendur skal skipt jafnt milli annarra skipa, þó ekki meira, í þorskígildum talið, en viðkomandi bátur landaði á fiskveiðiárinu 2022/2023, afganginum skal skipt hlut­falls­lega, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, sem landað var innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  d) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitar­félaginu úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan sveitarfélagsins, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  e) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi sveitar­félags á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Kaldrananeshreppur (breyting á almennum skilyrðum, löndunarskylda innan byggðar­lags, vinnsluskylda innan byggðarlags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Drangsness með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 30% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorsk­ígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum á Drangsnesi á fiskveiði­árinu 2023/2024 og 70% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Drangs­ness, miðað við allan landaðan botnfiskafla á Drangsnesi í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa á Drangsnesi þeim afla sem telja á til byggðakvóta Drangsness og til vinnslu innan Drangs­ness á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Snæfellsbær (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Arnarstapa, Hellissands, Ólafs­víkur og Rifs með eftirfarandi breytingum:

  a) Í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist „í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðar­lags“ og verður: í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitar­félagsins á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Strandabyggð (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags, niður­felling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Hólmavíkur með eftirfarandi breyt­ingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstök­um sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 25% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar og 75% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan við­komandi byggðar­lags á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2022 til 31. ágúst 2023.
  c) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  d) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Suðurnesjabær vegna Garðs (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Garðs með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Sveitarfélagið Árborg (vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Eyrarbakka og Stokkseyrar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu, innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Sveitarfélagið Hornafjörður (breyting á viðmiðun úthlutunar).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Hafnar með eftirfarandi breyt­ingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 15% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðarinnar og 85% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan viðkomandi byggðar­lags á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Sveitarfélagið Ölfus (breyting á viðmiðum um úthlutun).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftir­farandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggðakvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem upp­fylla skil­yrði 1. gr. reglugerðarinnar en 65% byggðakvótans í Þorláks­höfn skal skipt hlutfalls­lega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildis­stuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Tálknafjarðarhreppur (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan byggðar­lags, vinnsluskylda).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Tálknafjarðar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. og 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að: 50% skal skipt jafnt á þá báta sem landað hafa sínum afla fiskveiðiárið 2021/2022 í Tálknafirði og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. 50% skal skipt hlut­fallslega, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Tálknafirði í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í Tálknafirði þeim afla sem telja á til byggðakvóta Tálknafjarðar og til vinnslu á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Vesturbyggð (breyting á viðmiðun úthlutunar, afmörkun landaðs afla, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Bíldudals, Brjánslækjar og Patreks­fjarðar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 23. janúar 2024.

 

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. janúar 2024