Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1199/2021

Nr. 1199/2021 11. október 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/667 frá 19. desember 2018 um breyt­ingu á framseldum reglugerðum (ESB) 2015/2205, (ESB) 2016/592 og (ESB) 2016/1178 um að fresta gildistöku stöðustofnunarskyldu fyrir ákveðna OTC-afleiðusamninga, sem tekin var upp í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69/2020 frá 29. október 2020, bls. 252-254.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mót­aðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 11. október 2021.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.


B deild - Útgáfud.: 25. október 2021