Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 956/2017

Nr. 956/2017 27. október 2017

LÖGREGLUSAMÞYKKT
fyrir Mosfellsbæ.

I. KAFLI

Gildissvið.

1. gr.

Lögreglusamþykkt þessi gildir fyrir lögsagnarumdæmi Mosfellsbæjar.

II. KAFLI

Um reglu, velsæmi og almennt öryggi á almannafæri.

2. gr.

Með almannafæri er í samþykkt þessari átt við götur, vegi, gangstéttir, gangstíga, svæði ætluð til almenningsnota og staði sem opnir eru almenningi, svo sem kvikmyndahús, leikhús, samkomuhús, söfn, veitingastaði, verslanir, leiktækjastaði, bifreiðastöðvar, biðskýli og söluturna.

Með leiktækjastað er átt við stað þar sem aðgangur er veittur að leiktækjum, spilakössum, knatt­borðum, tölvum o.þ.h., gegn borgun.

3. gr.

Uppþot, áflog, óspektir eða önnur háttsemi sem raskar allsherjarreglu má ekki eiga sér stað á almannafæri og ekki mega menn þyrpast þar saman ef það tálmar umferð eða veldur vegfarendum óþægindum.

Enginn má áreita aðra á almannafæri eða sýna þar af sér ósæmilega háttsemi.

4. gr.

Bannað er að hafast nokkuð að sem veldur ónæði eða raskar næturró manna. Á virkum dögum skal halda næturró frá kl. 24.00 til 07.00. Um helgar og á helgidögum skal halda næturró frá kl. 24.00 til kl. 08.00. Röskun á næturró í almannaþágu, s.s. vegna snjómoksturs á vegum Mosfellsbæjar, er heimil frá kl. 05.00. Undanþágu frá reglu þessari veitir Mosfellsbær vegna tímabundinnar starfsemi sem telst í almannaþágu. Lögreglustjóri getur bannað notkun hátalara, hljómflutningstækja, hljóð­færa eða annars þess háttar á eða við almannafæri ef ástæða er til að ætla að hún valdi veru­legu ónæði eða truflun.

Bæjarstjórn getur bannað neyslu áfengis á almannafæri á tilteknum tíma á tilteknum svæðum í þéttbýli. Slíka samþykkt skal tilkynna lögreglustjóra og birta almenningi.

5. gr.

Þegar fjölmenni safnast saman á almannafæri svo sem í eða við biðstöðvar almenningsvagna og leigubifreiða, miðasölur, banka, veitingastaði, verslanir eða aðra afgreiðslustaði, skal mynda röð þannig að þeir sem fyrstir koma fái fyrstir afgreiðslu.

6. gr.

Hver sá sem staddur er á almannafæri er skyldur til að segja til nafns síns, kennitölu og heimilis þegar lögreglan krefst þess.

Skylt er að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur s.s. vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi reglu á almannafæri.

7. gr.

Lögreglan getur vísað þeim mönnum í burtu af almannafæri sem með háttsemi sinni valda veg­farendum eða íbúum í nágrenninu ónæði.

Sama á við um þá sem valda óspektum, hættu eða hneykslan á almannafæri sökum ölvunar eða af öðrum ástæðum.

8. gr.

Meðferð vatns við hvers konar þrif utandyra er óheimil nema í frostlausu veðri ef það veldur rennsli á gangstétt, gangstíg eða götu þannig að valdi hættu eða óþægindum.

Í götubrunna og göturæsi má ekki hella mengandi efnum svo sem spilliefnum eða efnum sem valdið geta mengun eða skemmdum í holræsakerfinu.

Eiganda eða umráðamanni húss er skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.

9. gr.

Öllum ber að gæta þess að ganga vel um á almannafæri og skemma þar ekki hluti sem ætlaðir eru til almenningsnota eða prýði. Þetta á einnig við þá hluta af húsum og öðrum mannvirkjum sem liggja að almannafæri.

Á mannvirki og hluti má ekki mála, teikna eða festa auglýsingar nema með leyfi eiganda eða umráðamanns. Veggjakrot á fasteignir í eigu bæjarins, skólamannvirki, umferðarmannvirki, bekki, ljósastaura, leiktæki, útilistaverk og aðra sams konar muni og eignir bæjarins er með öllu bannað.

Óheimilt er að reisa auglýsingaskilti á almannafæri nema með leyfi Mosfellsbæjar. Mosfellsbær skal tilkynna lögreglustjóra um slík leyfi. Uppfestar auglýsingar skulu hlutaðeigendur taka niður, þegar þær hafa fullnægt tilgangi sínum, og hreinsa vel staðinn þar sem þær voru hafðar. Löglega upp­festar auglýsingar má enginn rífa niður eða gera ólæsilegar á annan hátt.

10. gr.

Bæjarstjórn getur sett umgengnisreglur um skemmtigarða, leikvelli, lystigarða, tjarnir, kirkjugarða og önnur opinber svæði, enda séu reglurnar festar upp við innganginn eða á öðrum áberandi stað.

Hvorki má troða niður ræktaða bletti, grasreiti, blómabeð og limgerði á almannafæri né slíta þar upp blóm eða annan gróður.

Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sér­merktra svæða.

11. gr.

Tilkynna skal lögreglustjóra um fyrirhugaðar hópgöngur, útifundi, tónleika og aðrar útisamkomur í því skyni að hann geti gert viðeigandi ráðstafanir varðandi stjórnun umferðar.

Lögreglustjóri getur breytt gönguleið eða samkomustað telji hann það nauðsynlegt.

12. gr.

Meðferð skotvopna á almannafæri er bönnuð nema með sérstakri undanþágu frá lögreglustjóra.

Ekki má á almannafæri ganga með logandi blys, kveikja í bálköstum né halda skoteldasýningar nema með leyfi lögreglustjóra.

13. gr.

Enga atvinnu sem tálmar umferð má reka á almannafæri.

Bæjarstjórn getur sett samþykktir um farandsölu og sölu á götum, torgum og öðrum stöðum.

14. gr.

Óheimilt er að framkvæma eða aðhafast nokkuð það á götum, gangstéttum, hjólreiðastígum eða opnum svæðum sem hindrar umferð nema að gefin hafi verið út framkvæmdaheimild af hálfu Mosfellsbæjar.

Ekki má gera jarðrask, svo sem skurð í gangstéttir, götur eða torg né raska þeim á annan hátt, nema með leyfi Mosfellsbæjar. Skal Mosfellsbær við veitingu leyfis setja skilyrði sem nauðsynleg eru til að afstýra hættu fyrir vegfarendur og tilkynna leyfisveitingu til lögreglustjóra. Að verki loknu skal leyfishafi færa það í samt lag sem raskað var.

Þegar gerður er skurður í gangstétt skal sá sem verkið vinnur sjá um að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og annarra, svo sem með því að sjá fyrir göngubrautum og tryggja að vegfarendur séu aðvaraðir um farartálmann, t.d. með ljósum, glitmerkjum o.þ.h. þegar dimmt er. Slík verk skulu unnin þannig að sem minnstur farartálmi verði. Sé nauðsynlegt að loka gangstétt vegna fram­kvæmda skal hjáleið tryggð og afgirt frá umferð ökutækja innan þéttbýlismarka og annars staðar þar sem umferð er mikil.

Mosfellsbær getur bannað umferð um götur að nokkru eða öllu leyti meðan á verki stendur eða skipað fyrir um hvernig umferðinni skuli hagað. Haft skal samráð við vegamálastjóra þegar það á við. Einnig getur Mosfellsbær ákveðið að skurðir í götur séu byrgðir og uppgröftur fjarlægður þannig að umferð sé óhindruð um göturnar á þeim tíma sem ekki er unnið, svo sem að næturlagi og um helgar. Þá getur Mosfellsbær, ef framkvæmdirnar dragast um of, látið setja í samt lag það sem raskað var, eftir atvikum á kostnað þeirra sem ábyrgð bera á framkvæmd.

Setja skal upp skilti og merkingar til leiðbeiningar fyrir ökumenn vegna framkvæmda sem truflað geta umferð. Sé fyrirsjáanlegt að framkvæmdir muni taka lengri tíma en 7 daga skal setja upp ítarlegri skilti þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdina, á hvers vegum hún er og hvað hún muni standa lengi.

Mosfellsbær getur beint þeim fyrirmælum til ökumanna og eigenda ökutækja að þeir leggi ekki ökutækjum á tilteknum svæðum svo unnt sé að framkvæma hvers konar nauðsynlegar viðgerðir eða hreinsanir á götum. Tilmælin skulu tilkynnt með upplýsingaskiltum eða öðrum tryggum hætti. Sé slíkum tilmælum ekki sinnt getur Mosfellsbær látið flytja ökutæki á brott án frekari viðvörunar svo viðgerð eða hreinsun geti farið fram. Tilkynna skal eiganda ökutækis og lögreglu um brott­flutninginn og hvar má vitja ökutækisins sé það ekki flutt aftur á sama stað eftir að viðgerð eða hreinsun lýkur.

15. gr.

Húseigendum eða umráðamönnum húseigna er skylt að hlíta fyrirmælum Mosfellsbæjar um frágang girðinga o.þ.h. sem liggja að almannafæri. Einnig skal húsráðendum skylt að snyrta allan gróður, þ.m.t. trjágróður sem liggur að götum, gangstéttum og gangstígum, þannig að umferð vegfarenda sé óhindruð. Bæjarstjórn getur sett nánari reglur um skerðingu gróðurs. Hlíti húseigandi eða lóðarhafi ekki fyrirmælum Mosfellsbæjar um frágang samkvæmt þessari grein er heimilt að láta vinna verkið á hans kostnað enda sé honum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.

Húsráðendur skulu sjá til þess að allt lauslegt á lóð sé tryggilega fest ef von er á hvassviðri.

Þegar hús eða annað mannvirki brennur eða það er flutt brott, án þess að annað sé byggt í staðinn, er eiganda skylt að ganga svo frá hússtæðinu að ekki stafi af því hætta, óþrifnaður eða óprýði. Sama gildir um hús sem standa yfirgefin.

Þegar hús er byggt, rifið, endurbyggt eða flutt er eiganda og/eða verktaka skylt að haga sér eftir þeim fyrirmælum sem Mosfellsbær gefur til að forðast farartálma, hættu eða óþægindi fyrir veg­far­endur og skal hann setja upp skilti til leiðbeiningar eftir því sem við á. Við flutning húsa skal eigandi og/eða verktaki kalla til lögreglu eftir því sem umferðarlög kveða á um.

Girðingar sem hafa verið reistar vegna mannvirkjagerðar skal fjarlægja þegar þeirra er ekki lengur þörf.

Um öryggi á vinnusvæðum við almannafæri gilda ákvæði skipulagslaga og laga um mannvirki auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og ákvæði laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum ásamt reglum settum á grundvelli þeirra.

Nauðsynlegar sprengingar vegna mannvirkjagerðar má aðeins framkvæma með sérstöku leyfi lögreglustjóra og Mosfellsbæjar.

16. gr.

Enginn má án leyfis húsráðanda láta fyrir berast á lóðum hans eða landi. Auk þess getur lögreglan bannað mönnum að hafast þar við ef hún telur að það geti valdið óþægindum eða hættu.

Ekki má fara í híbýli manna í söluerindum ef húsráðandi leggur við því bann.

17. gr.

Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á lóð eða land annars manns. Hver sem það gerir skal flytja óhreinindin tafarlaust í burt á sinn kostnað.

Ekki má ganga örna sinna eða kasta af sér þvagi á almannafæri eða á lóð eða land eða híbýli annars manns. Hver sem það gerir skal hreinsa upp eftir sig.

III. KAFLI

Um ökutæki, umferð o.fl.

18. gr.

Á almannafæri má ekki leggja eða setja neitt það sem hindrar umferð.

Á götum má ekki hindra umferð með skemmtunum eða leikjum nema með leyfi lögreglustjóra.

Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum. Lögreglustjóri getur, að fengnum tillögum Mosfells­bæjar, veitt undanþágu frá ofangreindu.

Vörubifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri má ekki leggja á götum eða almenningsbifreiðastæðum nema þau séu til þess ætluð. Bann þetta gildir einnig um hvers konar vinnuvélar og dráttarvélar án tillits til þunga þeirra. Mosfellsbær getur veitt undanþágu frá banni þessu og skal þá afmarka og merkja sérstaklega þá staði þar sem undanþága hefur verið veitt. Óheimilt er að gangsetja ökutæki og vélar sem lagt hefur verið á stæðum ætluðum slíkum ökutækjum og vélum á tímabilinu frá kl. 23.00 – 07.00 ef slíkt hefur í för með sér ónæði fyrir íbúa.

Lögreglustjóri getur bannað stöðu eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjólhýsa, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla, á götum og almennum bifreiðastæðum sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu.

Heimilt er að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, að flytja burtu og taka í vörslu sveitarfélagsins ökutæki sem standa án skráningarnúmera á lóðum við almannafæri, götum og almennum bifreiðastæðum. Sama gildir um ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum og um eftirvagna og tengivagna sem standa umfram þrjá daga samfellt á götum og almennum bifreiðastæðum utan einkalóða. Tilkynna skal skráðum eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann bera kostnað vegna flutnings og vörslu ökutækisins.

19. gr.

Vélar kyrrstæðra bifreiða og vinnuvéla sem ekki eru í notkun er óheimilt að hafa í gangi eða skilja eftir í gangi lengur en nauðsynlegt er, svo komast megi hjá mengun og hávaða á almannafæri og annars staðar þar sem ætla má að slíkt valdi óþægindum.

20. gr.

Lögreglustjóri getur að fengnum tillögum Mosfellsbæjar, takmarkað eða bannað umferð stórvirkra vinnuvéla, vörubifreiða eða annarra ökutækja á einstökum götum ef slík umferð er álitin hættuleg eða til sérstakra óþæginda fyrir aðra umferð eða íbúa.

Allur akstur torfærutækja, s.s. vélsleða og torfæruhjóla, er bannaður innan þéttbýlis. Mosfellsbær getur þó heimilað undanþágu frá þessu ákvæði á afmörkuðum svæðum og skal sú ákvörðun til­kynnt lögreglustjóra.

21. gr.

Á og við götur eða vegi eða þar sem hætta stafar af má ekki gera rennibrautir, renna sér á skíðum, hjólaskautum, hjólabrettum, skautum, sleðum eða iðka leiki, skemmtanir eða íþróttir þannig að hætta eða umferðartruflun geti hlotist af. Einnig er bannað að hanga í bifreiðum, dráttarvélum, vögnum eða öðrum farartækjum sem eru á ferð eða festa við þau sleða, handvagn eða annað sem óþægindum eða hættu getur valdið.

Lögreglustjóri getur heimilað skíða-, sleða- eða rennibrautir á vegi í alfaraleið og skulu þeir vegir sérstaklega merktir sem slíkir. Þar mega ekki aðrir fara með ökutæki en íbúar gatnanna eða menn í erindum þeirra og skal þá ýtrustu varúðar og tillitssemi gætt.

22. gr.

Ef ís á sjó eða vötnum þykir ekki nógu traustur getur lögreglustjóri bannað alla umferð um hann.

23. gr.

Þeir sem flytja farm um götur Mosfellsbæjar skulu gæta þess vandlega að ganga þannig frá farminum að ekki valdi óþrifnaði eða hættu. Nota skal yfirbreiðslur þegar farmur er það fíngerður að hætta er á að hann fjúki og alltaf skal nota gafla og vör (skjólborð) við flutning innan bæjar­markanna. Ef eitthvað hrynur niður við flutning, fermingu eða affermingu á almannafæri er stjórn­anda flutningstækisins skylt að hreinsa það upp þegar í stað, að öðrum kosti er bænum heimilt að gera það á kostnað flytjanda eða þess sem ábyrgð ber á flutningi.

Framkvæmdaraðilar og verktakar sem aka frá framkvæmdasvæði og inn á gatnakerfi bæjarins skulu gæta þess að hreinsa flutningstæki sín og hjólbarða bifreiða sinna og vinnuvéla áður en þeir fara inn á malbikaðar götur.

Framkvæmdaaðilar og verktakar á þeirra vegum skulu einnig gera ráðstafanir á aðkeyrslum fram­kvæmda­svæða þannig að bifreiðar, vélar og tæki beri ekki óþrif s.s. jarðveg inn á gatnakerfi bæjarins t.d. með hreinum yfirborðsefnum og/eða þvotti, að öðrum kosti er bænum heimilt að þrífa götur á kostnað framkvæmdaaðila.

Öðrum en starfsmönnum og verktökum á vegum Mosfellsbæjar er óheimilt að dreifa efni s.s. sandi, möl eða salti á götur bæjarins.

Við framkvæmdir, flutninga og þvott á vegum í Mosfellsbæ skal leitast við að lágmarka rykmengun.

IV. KAFLI

Um veitingastaði, skemmtanahald o.fl.

24. gr.

Um leyfi til rekstrar veitingastaða, útleigu samkomusala í atvinnuskyni og leyfi til skemmtanahalds gilda ákvæði laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Veitingastaði án áfengisveitinga (flokkur I) er heimilt að hafa opna allan sólar­hringinn. Stafi íbúum í nágrenni slíks veitingastaðar ónæði af rekstrinum getur bæjarstjórn þó tak­markað afgreiðslutíma hans.

Áfengisveitingar á umfangslitlum áfengisveitingastöðum (flokkur II) eru heimilar frá kl. 06.00 til kl. 23.00 alla daga, nema bæjarstjórn ákveði annað. Með sama fyrirvara eru áfengisveitingar á umfangs­miklum áfengisveitingastöðum (flokkur III) heimilar frá kl. 06.00 til kl. 23.30 virka daga og til kl. 03.00 aðfaranætur laugardaga, sunnudaga og almennra frídaga.

Áfengisveitingastöðum skal lokað þegar heimiluðum áfengisveitingatíma lýkur og má ekki opna þá að nýju að morgni dags fyrr en a.m.k. tvær klukkustundir eru liðnar frá lokun. Allir gestir skulu hafa yfirgefið áfengisveitingastað eigi síðar en einni klukkustund eftir lokun hans.

Afgreiðslu- eða þjónustutími verslana og annarra þjónustufyrirtækja er frjáls að því marki sem heimilt er að lögum er gilda á hverjum tíma eða reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Bæjar­stjórn getur þó takmarkað afgreiðslu- eða þjónustutíma hjá einstökum aðilum ef starfsemin veldur nágrönnum eða vegfarendum ónæði.

25. gr.

Hver sá sem rekur veitinga- eða gististað, kvikmynda-, leik- eða annað samkomuhús eða heldur almenna skemmtun eða sýningu, skal sjá um að allt fari þar vel fram og starfsemin valdi ekki nágrönnum eða vegfarendum ónæði.

Slík starfsemi skal háð sérstöku eftirliti lögreglu og er henni heimilt að fara um samkomusali og önnur húsakynni sem gestir eiga aðgang að.

Á öllum gististöðum skal haldin nákvæm gestaskrá.

26. gr.

Enginn má reka leiktækjastað eða þess háttar starfsemi gegn borgun nema með leyfi lögreglustjóra að fenginni umsögn Mosfellsbæjar. Leyfi skal ekki veita til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Það skal bundið við nafn leyfishafa og rekstur á tilteknum stað. Ef leyfishafi brýtur gegn ákvæðum greinar þessarar eða reksturinn þykir ekki fara vel úr hendi getur lögreglustjóri svipt hann leyfinu enda hafi leyfishafi ekki sinnt áminningu um úrbætur.

Börnum yngri en 14 ára er ekki heimill aðgangur að slíkum leiktækjastöðum nema í fylgd með forráðamönnum. Miða skal aldur við fæðingarár en ekki fæðingardag.

27. gr.

Óheimilt er að halda nektarsýningar eða aðrar sýningar af kynferðislegum toga.

V. KAFLI

Um götuspjöld og húsnúmer.

28. gr.

Bæjarstjórn ákveður nöfn á götum og lætur festa upp skilti með þeim, þar sem þurfa þykir, svo sem við gatnamót og á fasteignir.

Húseigendur skulu merkja hús sín með húsnúmeri og eftir atvikum bókstöfum, á götuhlið eða öðrum áberandi stað, vegfarendum og þjónustuaðilum til glöggvunar.

VI. KAFLI

Um útivistartíma barna og ungmenna.

29. gr.

Um útivistartíma barna og ungmenna og eftirlit með sýningum eða skemmtunum ætluðum börnum gilda ákvæði barnaverndarlaga og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.

VII. KAFLI

Um dýrahald.

30. gr.

Um dýrahald fer eftir sérstökum samþykktum Mosfellsbæjar, s.s. samþykkt um búfjárhald í Mosfellsbæ, samþykkt um hundahald í Mosfellsbæ, samþykkt um kattahald í Mosfellsbæ og sam­þykkt um hænsnahald í Mosfellsbæ utan skipulagðra landbúnaðarsvæða.

Umferð reiðhesta er bönnuð innan þéttbýlismarka annars staðar en á merktum reiðstígum nema með sérstöku leyfi eða samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar.

VIII. KAFLI

Um refsingar, kostnað, gildistöku o.fl.

31. gr.

Ef einhver lætur það ógert sem honum er skylt að gera samkvæmt samþykkt þessari getur lög­reglu­stjóri látið framkvæma það eða gert aðrar nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra að van­rækslan valdi tjóni. Kostnaður sem leiðir af framkvæmdum og ráðstöfunum lögreglustjóra greiðist af þeim er ábyrgð ber á vanrækslunni.

32. gr.

Brot gegn samþykkt þessari varða sektum, sbr. 6. gr. laga nr. 36 18. maí 1988 um lögreglu­samþykktir, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum eða reglugerðum.

Mál sem varða brot gegn ákvæðum samþykktar þessarar skal fara með að hætti laga um meðferð opinberra mála.

33. gr.

Lögreglusamþykkt þessi, sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samið og samþykkt, er sett sam­kvæmt heimild í 2. gr. laga nr. 36 18. maí 1988, um lögreglusamþykktir, og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 27. október 2017.

Sigríður Á. Andersen.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 13. nóvember 2017