Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1256/2019

Nr. 1256/2019 20. desember 2019

REGLUGERÐ
um togveiðar á kolmunna árið 2020.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna í fiskveiðilandhelgi Íslands, fiskveiðilandhelgi Færeyja og á veiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

2. gr.

Aflamark.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa afla­mark í kolmunna.

Fyrir tímabilið 1. janúar 2020 til 31. desember 2020 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í lestum): 

A B C D
188.530 9.992 2.000 176.538
  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Skerðing vegna framsals til Rússlands.
  4. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% umfram aflamark í kolmunna á árinu 2020 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2021. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2020 til ársins 2021. Flutningsheimildir samkvæmt þessari grein eiga einnig við um aflaheimildir sem skip fá úthlutað af aflamagni sem dregið er frá upphaflegri úthlutun sam­kvæmt B-lið 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar.

3. gr.

Veiðisvæði.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90´ N - 020°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 019°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 018°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 018°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 018°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 017°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 016°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 015°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 015°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 015°00,00´ V
  11. 63°33,60´ N - 014°41,70´ V
  12. 63°43,40´ N - 013°53,00´ V
  13. 64°00,00´ N - 013°07,00´ V
  14. 64°21,70´ N - 012°17,30´ V
  15. 64°32,30´ N - 011°41,00´ V
  16. 65°00,00´ N - 011°28,00´ V
  17. 65°27,00´ N - 011°24,00´ V
  18. 66°06,00´ N - 011°33,00´ V
  19. 66°42,00´ N - 012°50,00´ V 

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunna­veiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

4. gr.

Sýnataka.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera a.m.k. 50 stykki af kolmunna sem valin eru af handa­hófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsókna­stofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

5. gr.

Fjarskiptabúnaður.

Fiskiskip sem stunda kolmunnaveiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiði­nefndar­innar (NEAFC) skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlits­stöðvar Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutað­eigandi stofnana.

Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjarskipta­búnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upp­lýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

6. gr.

Tilkynningar.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar um veiði­eftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og taka þær tilkynn­ingar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu.

Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum fær­eyskra stjórnvalda.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og fyrirhugaðan löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarkstíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

7. gr.

Löndun og vigtun.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri tilgreina í umsókn nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætla magn kolmunna. Sé landað erlendis þarf jafnframt að tilkynna þar til bæru yfir­valdi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnríkinu. Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC, https://psc.neafc.org. Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/designated-contacts. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og afla­verðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kol­munna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla, þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

8. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fisk­veiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða.

9. gr.

Lagaheimild og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafn­framt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 320/2019, um togveiðar á kolmunna 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2019