Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 356/2017

Nr. 356/2017 7. apríl 2017

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 286/2012 um meistaranám við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 1. málslið 1. mgr. 2. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Lágmarkseinkunn til að innritast í nám til MS-prófs í ferðamálafræði eða landfræði við líf- og umhverfisvísindadeild skal þó vera 7,25.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af líf- og umhverfisvísindadeild og stjórn verkfræði- og náttúruvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 7. apríl 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2017