Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
1204/2023

Nr. 1204/2023 7. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 327/2016 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (VI).

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í bókun 47 við samn­inginn (um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín), gilda hér á landi með þeim breyt­ingum og viðbótum sem leiðir af bókun 1 við samninginn, altækri aðlögun í inngangi að bókun 47 við samn­inginn og sértæka aðlögunartextanum í 1. viðbæti við bókun 47 við samninginn.

 

2. gr.

Á eftir i-lið d-liðar 2. gr., kemur nýr liður, ii-liður, svohljóðandi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2393 frá 13. desember 2017 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1305/2013 um stuðning Dreifbýlisþróunarsjóðs evrópsks landbúnaðar (EAFRD) við dreifbýlisþróun, (ESB) nr. 1306/2013 um fjármögnun, stjórnun og eftirlit með sam­eigin­legu landbúnaðarstefnunni, (ESB) nr. 1307/2013 um að koma á reglum um beingreiðslur til bænda samkvæmt stuðningskerfum innan ramma sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar, (ESB) nr. 1308/2013 um sameiginlegt markaðskerfi fyrir landbúnaðarafurðir og (ESB) nr. 652/2014 um ákvæði um stjórnun útgjalda er varða matvælaferlið, heilbrigði dýra og velferð dýra og sem varða plöntuheilbrigði og fjölgunarefni plantna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 273/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 76, frá 17. nóvember 2022, bls. 25.

 

3. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40. gr., sbr. 27. gr. laga nr. 130/2014, um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu og 31. gr. a laga nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 7. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2023