Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 4/2023

Nr. 4/2023 10. janúar 2023

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og aug­lýsingar nr. 9/2020, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. einnig umsögn Sam­keppnis­eftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna. Skal undan­þága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 10. janúar 2026:

  1. Blámi – fjárfestingarfélag ehf.
  2. Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf.
  3. Flói ehf.
  4. Hömlur ehf.
  5. Hömlur fyrirtæki ehf.
  6. Lindir Resources ehf.
  7. Landsbréf hf.

 

2. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftir­talinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:

  1. Holtavegur 10 ehf.
  2. Iceland Construction ehf.
  3. Span ehf.
  4. SPN1 hf.

 

3. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga og öðlast þegar gildi.

 

Forsætisráðuneytinu, 10. janúar 2023.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Bryndís Hlöðversdóttir.


B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2023