Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 929/2019

Nr. 929/2019 27. september 2019

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast 4 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/387 frá 11. mars 2019 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á olíu úr Schizochytrium sp. (ATCC PTA-9695) sem nýfæði og breytingu á heitinu olíu úr Schizochytrium sp. (ATCC PTA-9695) og sértækum kröfum um merkingu þess samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 62.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/388 frá 11. mars 2019 um leyfi til að breyta nákvæmum skilgreiningum á nýfæðinu 2´-fúkósýllaktósa, sem er fram­leiddur með Escherichia coli K-12, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 66.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/456 frá 20. mars 2019 um leyfi til að breyta nákvæmum skilgreiningum á nýfæðinu kóríanderolíu úr fræi Coriandrum sativum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-við­bæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 70.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/506 frá 26. mars 2019 um leyfi til að setja á markað D-ríbósa sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðs­ins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnar­innar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 73.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. september 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. október 2019