Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 218/2019

Nr. 218/2019 1. mars 2019

AUGLÝSING
(V) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Fjarðabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Stöðvarfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 21. febrúar 2019.
  b) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 21. febrúar 2019.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 37% byggða­kvóta byggðarlagsins skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar en 63% byggðakvóta byggðarlagsins skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta, innan viðkomandi byggðarlags til vinnslu innan sveitar­félags­ins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Breiðdalsvíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 25% byggðakvóta byggðarlagsins skal skipt jafnt milli skipa og 75% skal skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til við­komandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. sept­ember 2017 til 31. ágúst 2018.

Vesturbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Patreksfjarðar, Brjánslækjar og Bíldudals með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Sveitarfélagið Ölfus.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2018.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggða­kvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið, á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. mars 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 4. mars 2019