Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 788/2019

Nr. 788/2019 23. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um (15.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 79. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1967 frá 12. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið parómómýsín með tillit til hámarksgildis leifa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 115/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 29. maí 2019, bls. 63.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. ágúst 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. september 2019