Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1341/2016

Nr. 1341/2016 20. desember 2016

REGLUR
um fyrirkomulag og notkun nettengdra tölva og síma í lokuðum fangelsum.

1. gr.

Fanga í lokuðu fangelsi er heimilt, samkvæmt ákvörðun forstöðumanns, að hafa aðgang að nettengdri tölvu í sameiginlegu rými fangelsis á nánar tilgreindum tímum.

Tilgangurinn með því að leyfa fanga að hafa aðgang að nettengdri tölvu í lokuðum fangelsum er að gera honum kleift að fylgjast með gangi þjóðmála, að sinna persónulegum erindum við opinberar stofnanir og að sinna námi sínu og/eða vinnu.

2. gr.

Óheimilt er að nýta nettengingu til að ræða um, birta eða senda frá sér nokkurt efni er varðar samfanga, starfsmenn eða starfsemi fangelsis. Jafnframt er óheimilt að taka þátt í umræðu í gegnum netið, svo sem í gegnum athugasemdakerfi fjölmiðla.

Óheimilt er að nýta aðrar nettengingar en þær sem fangelsið útvegar.

Fangi er ábyrgur fyrir allri þeirri netnotkun sem hann er skráður fyrir.

3. gr.

Fanga er með öllu óheimilt að halda úti eða nýta samskiptamiðla eða eigin vefsíður, líkt og Facebook, Twitter, Instagram, Snapchat, einkamálaauglýsingar eða sambærilega miðla. Fangi ber ábyrgð á eigin vefsíðum og samskiptamiðlum.

4. gr.

Fanga er með öllu óheimilt að nýta nettengingu til að nálgast klámfengið, ofbeldisfullt eða ólöglegt efni.

5. gr.

Beint niðurhal af netinu á til dæmis myndefni, hljóðskrám eða öðru sambærilegu efni er aðeins heimilt ef það samræmist tilgangi reglnanna. Nettengingu má ekki nota til þess að ná í afþreyingarefni svo sem bíómyndir, sjónvarpsþætti, tölvuleiki eða annað sambærilegt efni.

6. gr.

Netnotkun og netumferð er skráð með þar til gerðum hugbúnaði sem skráir auðkennanlegar tölvuupplýsingar.

7. gr.

Símar í lokuðum fangelsum eru staðsettir á hverri deild og eru símatímar samkvæmt húsreglum hvers fangelsis.

Fanga í lokuðum fangelsum er óheimilt að vera með síma í fórum sínum.

8. gr.

Brot gegn ofanskráðum reglum varða viðurlögum skv. 73. og 74. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga og geta auk þess meðal annars haft áhrif á afgreiðslu beiðna um vistun í opnu fangelsi, dagsleyfi, fjölskylduleyfi, vistun utan fangelsa, rafrænt eftirlit og reynslulausn. Einnig getur komið til brottflutnings af deild eða í annað fangelsi við brot á reglum.

9. gr.

Reglur þessar eru settar af Fangelsismálastofnun og byggjast á heimild í 56. sbr. 98. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 og öðlast þær þegar gildi.

Fangelsismálastofnun ríkisins, 20. desember 2016.

Páll E. Winkel.


B deild - Útgáfud.: 3. febrúar 2017