Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 523/2020

Nr. 523/2020 26. maí 2020

REGLUGERÐ
um (17.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

34)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1257 frá 23. júlí 2019 um að leiðrétta búlgörsku tungumálaútgáfuna af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 430.
35)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1857 frá 6. nóvember 2019 um breyt­ingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­svæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 431-434.
36)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1858 frá 6. nóvember 2019 um breyt­ingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­svæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 435-437.
37)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1966 frá 27. nóvember 2019 um breyt­ingu og leiðréttingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samn­ings­ins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 36/2020 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 125-136.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1257 frá 23. júlí 2019 um að leiðrétta búlgörsku tungumálaútgáfuna af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1857 frá 6. nóvember 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1858 frá 6. nóvember 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1966 frá 27. nóvember 2019 um breyt­ingu og leiðréttingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. maí 2020.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2020