Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1170/2017

Nr. 1170/2017 11. desember 2017

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps.

I. KAFLI

1. gr.

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps selur afnot hitaorku úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi hitaveitunnar og hún hefur umráðarétt yfir, eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð staðfesta af iðnaðar- og viðskiptaráðherra nr. 252/2001, með síðari breytingum fyrir Hitaveitu Grímsnes- og Grafnings­hrepps.

2. gr.

Hitaveitan lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. Hitaveitan lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarks­rennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við rúm­metra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. Hitaveitan ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. Hitaveitan breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrir árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 3 l/mín. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum. Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða hitaveitan, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

II. KAFLI

4. gr.

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps rekur tvö hitaveitusvæði með aðskildum dreifikerfum. Þessi svæði eru annars vegar á og við Borgarsvæðið með vatn frá Vaðnesi, hins vegar austari hluti Gríms­ness, með vatn frá Kringlu.

5. gr.

Verðskrá:

A. Hemlagjald (varmagjald):

Fyrir sumarbústaði, snjóbræðslukerfi og notkun samkvæmt sérsamningum skal greiða hemlagjald. Lágmarksstilling er 3,0 l/mín. Hemlagjald fyrir hvern mínútulítra er kr. 2.576.

B. Eldri samningar:

Þar sem vatnið er keypt skv. hemli beint úr stofnlögn er gjald fyrir hvern mínútulítra er kr. 2.297.

C. Rúmmetragjald skv. mæli:

Almennt íbúðar- og iðnaðarhúsnæði og gróðurhús greiða varmagjald. Varmagjald fyrir hvern rúm­metra vatns er kr. 122,50.

Sumarbústaður sem er með mæli og greiðir skv. rúmmetragjaldi skal þó aldrei greiða minna en sem nemur 3,0 l/mínútu eða sem nemur kr. 7.728 á mánuði, sbr. A-lið 5. gr.

Mælagjald á mánuði:

C1 Stærð mælis/hemils DN 15 1.228 kr.
C2 Stærð mælis/hemils DN 20 1.756 kr.
C3 Stærð mælis/hemils DN 25 2.170 kr.
C4 Stærð mælis/hemils DN 32 2.588 kr.
C5 Stærð mælis/hemils DN 40 3.006 kr.
C6 Stærð mælis/hemils DN 50 4.113 kr.

D. Stofngjöld:

Í þéttbýli sér sveitarfélagið um frágang heimæða að mæli.

D1 Íbúðarhús allt að 300 m³ og gróðurhús allt að 200 m³ kr. 655.777   
  Fyrir hvern rúmmetra/fermetra þar yfir skal greiða   250  kr./m³
D2 Vélageymslur og gripahús allt að 300 m³ kr. 381.202   
  Fyrir hvern rúmmetra fermetra þar yfir skal greiða   250  kr./m³
D3 Fyrir sumarhús      
  Stofngjald fyrir húsveitu kr. 655.777   
D4 Gjald fyrir auka mælagrind kr. 97.864   

Auk stofngjalds, sem að framan greinir, skal greiða 4.909 kr. fyrir hvern lengdarmetra heimæðar frá stofnæð.

E. Önnur gjöld:

Lokunargjald kr. 18.387     
Aukaálestur kr. 8.653     

6. gr.

Hitaveitugjöld skv. 5. gr. verða krafin þriðja hvern mánuð og skulu þau greiðast til skrifstofu Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps, í bönkum eða pósthúsum. Gjalddagi er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 15 daga frá eindaga.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks auka­gjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

7. gr.

Gjöld samkvæmt 5. gr. eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. Er veitustjórn heimilt að breyta þeim í samræmi við þær breytingar, sem á nefndri vísitölu verða.

III. KAFLI

8. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki/fjárnámi á kostnað gjaldanda, sbr. 28. gr. reglugerðar fyrir Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps og 79. gr. laga nr. 58/1967 með síðari breytingum.

9. gr.

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara, sbr. 27. gr. reglugerðar fyrir Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps.

Allan raunkostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er.

Eftirlitsmanni hitaveitunnar skal veittur hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þann 22. nóv­em­ber 2017, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2018 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1213/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. desember 2017.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2017