Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 226/2018

Nr. 226/2018 12. febrúar 2018

AUGLÝSING
um takmarkanir á umferð á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Takmarkanir á umferð um eyju í Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi.

Eyja í vestanverðu Jökulsárlóni, sem hefur um skeið verið nefnd Skúmey, er lokuð allri umferð nema í vísindalegum tilgangi, skv. ákvörðun þjóðgarðsvarðar suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Afmörkun er sýnd á meðfylgjandi korti í viðauka 1. Sækja þarf um leyfi til rannsókna í eyjunni líkt og til allra annarra rannsókna í Vatnajökulsþjóðgarði. Um er að ræða tímabundna lokun svæðisins frá birtingu þessarar auglýsingar þar til ákvæði um svæðið í stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs hafa tekið gildi.

Forsendur lokunarinnar eru eftirfarandi:

Eyjan kom undan jökli á árunum 1976-2000. Einangrun eyjunnar í lóninu hefur valdið því að áhrifa manna gætir þar lítið sem ekkert og er þar því einstakt tækifæri til að fylgjast með landnámi gróðurs og dýra líkt og í Surtsey. Ákvörðun um tímabundna lokun byggir á því að óheft umferð um eyjuna geti spillt þeim einstöku aðstæðum sem þar eru til að stunda vísindarannsóknir tengdar útbreiðslu gróðurs og dýra. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ályktað um þessar einstöku aðstæður. Við ákvörðun um lokun var haft í huga að ekki hafa enn tekið gildi ákvæði í stjórnunar- og verndaráætlun Vatna­jökuls­þjóðgarðs um svæðið, sem bætt var við landsvæði þjóðgarðsins með reglugerð nr. 730/2017.

Tímabundin lokun fyrir vetrarakstri vélknúinna ökutækja á svæði á austanverðum Breiða­merkur­sandi.

Svæði á austanverðum Breiðamerkursandi, sem afmarkast af Veðurá að austan- og sunnanverðu, Jökulsárlóni að vestanverðu og núverandi ísjaðri Breiðamerkurjökuls að norðanverðu er lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja, skv. ákvörðun þjóðgarðsvarðar suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Lokun þessi tekur til vetraraksturs, þ.e. aksturs á snævi þakinni og frosinni jörð. Afmörkun er sýnd á meðfylgjandi korti í viðauka 2. Á svæðinu eru engir vegir og gildir því að öðru leyti bann við akstri vélknúinna ökutækja utan vega í Vatnajökulsþjóðgarði, sbr. 4. mgr. 15. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð. Lokunin gildir til 30. apríl 2018 og verður þörf fyrir lokun veturinn 2018-2019 metin fyrir lok september nk.

Forsendur lokunarinnar eru eftirfarandi:

Litið er til þess að hér er um að ræða viðkvæmt svæði sem hefur komið undan jökli við hop Breiða­merkur­jökuls á síðustu árum og er að mestu leyti ósnortið af manna völdum. Akstur á svæð­inu gæti haft neikvæðar afleiðingar í för með sér þar sem hætta skapast á að varanleg slóð eða för myndist, jafnvel þótt jörð sé snævi þakin og frosin.

Hluti hins lokaða svæðis var hulinn jökli 1998 og því hluti Vatnajökulsþjóðgarðs frá stofnun hans, en auk þess nær lokunin til svæðis sem bætt var við landsvæði þjóðgarðsins, með reglugerð nr. 730 þann 25. júlí 2017. Tekin verður afstaða til umferðar og nýtingar á svæðinu með viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs eða við næstu endurskoðun hennar.

Ákvörðun þessi byggir á heimild í 7. mgr. 15. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007, sbr. 14. gr. laga nr. 101/2016. Sömu lög kveða á um mótun og gildistöku stjórnunar- og verndar­áætlunar þjóðgarðsins.

Skaftafelli, 12. febrúar 2018.

Regína Hreinsdóttir,
þjóðgarðsvörður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 27. febrúar 2018