Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 355/2020

Nr. 355/2020 17. apríl 2020

REGLUGERÐ
um (11.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ný grein á eftir 9. gr. sem verður 9. gr. a og orðast svo:

Að fenginni umsókn veitir Lyfjastofnun undanþágu frá ákvæðum þessarar reglugerðar og ákvæðum laga nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna, til innflutnings, með­ferðar og vörslu fræja tegundarinnar Cannabis sativa í þeim tilgangi einum að rækta iðnaðarhamp. Undan­þágan skal bundin eftirfarandi skilyrðum og takmörkunum:

  1. Að magn tetrahydrocannabinol (THC) í fræinu sé að hámarki 0,20%, sem og í þeim afurðum sem fræið kann að gefa af sér.
  2. Að um sé að ræða yrki tegundarinnar Cannabis sativa sem tilgreint er í sameiginlegri EES-skrá yfir yrki nytjaplantna í landbúnaði sem birt er samkvæmt tilskipun 2002/53/EB, sem innleidd er í íslenskan rétt með reglugerð nr. 301/1995, um eftirlit með sáðvöru.
  3. Að viðkomandi fræjum fylgi gögn sem sýni fram á að um sé að ræða yrki sem sé tilgreint í sameiginlegri EES-skrá og uppfylli skilyrði tilskipunar ráðsins 2002/57/EB, um markaðs­setn­ingu olíu- og trefjaplöntufræs, sem innleidd er í íslenskan rétt með reglugerð nr. 301/1995, um eftirlit með sáðvöru.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 65/1974, um ávana- og fíkni­efni, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 17. apríl 2020.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Ásta Valdimarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. apríl 2020