Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1474/2023

Nr. 1474/2023 7. desember 2023

GJALDSKRÁ
um meðhöndlun úrgangs í Ísafjarðarbæ.

1. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er heimilt að ákvarða og innheimta gjald fyrir söfnun og með­höndlun úrgangs, samkvæmt 16. gr. samþykktar nr. 1033/2023 um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, í samræmi við ákvæði 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Þá er Ísafjarðarbæ heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.

 

2. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að innheimt verði árgjald fyrir hvert ílát á heimili í samræmi við eftirfarandi gjaldskrá:

Gjöld vegna sorpíláta Ílát sem eru ≤ 10 m frá hirðubíl Ílát sem eru > 10 m frá hirðubíl*
Sorpílát með innra hólfi
Blandaður úrgangur með innra hólfi fyrir lífrænan úrgang, 240 l 25.700 kr. 38.550 kr.
Pappír með innra hólfi fyrir plast, 240 l 17.100 kr. 26.650 kr.
Sorpílát fyrir blandaðan úrgang
Blandaður úrgangur, 120 l 23.400 kr. 35.100 kr.
Blandaður úrgangur, 240 l 33.500 kr. 50.250 kr.
Blandaður úrgangur, 660 l 92.000 kr. 138.000 kr.
Blandaður úrgangur, 1.100 l 153.200 kr. 229.800 kr.
Sorpílát fyrir lífúrgang
Lífúrgangur, 120 l 12.900 kr. 19.350 kr.
Lífúrgangur, 240 l 25.700 kr. 38.550 kr.
Sorpílát fyrir pappír
Pappír, 120 l 12.000 kr. 18.000 kr.
Pappír, 240 l 17.100 kr. 25.650 kr.
Pappír, 660 l 47.200 kr. 70.800 kr.
Pappír, 1.100 l 78.600 kr. 117.900 kr.
Sorpílát fyrir plast
Plast, 120 l 12.000 kr. 18.000 kr.
Plast, 240 l 17.100 kr. 25.650 kr.
*Innheimt frá 1. september 2024
 
Önnur gjöld
Kostnaður vegna breytinga á ílátum 4.000 kr.
Endurnýjunargjald tunnu 240 l með flutningi á staðfang Samkvæmt gjaldskrá verktaka
Auka hirðing 7.300 kr.

 

Auk þess hefur bæjarstjórn ákveðið að fast gjald fyrir rekstur grenndar- og söfnunarstöðva og annan fastan kostnað verði 36.200 kr. fyrir heimili og 18.100 kr. fyrir sumarbústaði og íbúðar­húsnæði með ákvæði um takmörkun á íveru vegna snjóflóðahættu.

Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.

 

3. gr.

Móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á endurvinnslustöð:

a) Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt öku­tæki.
b) Íbúar Ísafjarðarbæjar þurfa ekki að greiða móttökugjald fyrir garðaúrgang.
c) Gjald fyrir móttöku í endurvinnslustöð í Ísafjarðarbæ er:
  Blandaður/grófur úrgangur 40 kr./kg
  Timbur 50 kr./kg

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, staðfestist samkvæmt heimild 16. gr. samþykktar um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, skv. lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2024. Jafn­framt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1483/2022.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 7. desember 2023.

 

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. desember 2023