Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 5/2022

Nr. 5/2022 31. janúar 2022

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

 

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:

  1. forsætisráðuneyti,
  2. dómsmálaráðuneyti,
  3. félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
  4. fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  5. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti,
  6. heilbrigðisráðuneyti,
  7. innviðaráðuneyti,
  8. matvælaráðuneyti,
  9. menningar- og viðskiptaráðuneyti,
  10. mennta- og barnamálaráðuneyti,
  11. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
  12. utanríkisráðuneyti.

 

Úrskurður þessi öðlast gildi 1. febrúar 2022. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forseta­úrskurðar nr. 118 frá 7. desember 2018 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

 

Gjört á Bessastöðum, 31. janúar 2022.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 31. janúar 2022