Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 997/2015

Nr. 997/2015 30. október 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „Kr. 300.000“ í 1. tölul. kemur: 360.000 kr.
  2. Í stað „Kr. 600.000“ í 2. tölul. kemur: 720.000 kr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „kr. 1.200.000“ í 2. mgr. kemur: 1.440.000 kr.
  2. Í stað „1.200.000 kr.“ í 6. mgr. kemur: 1.440.000 kr.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Er Tryggingastofnun heimilt að óska eftir áliti sjúkratryggingastofnunar á þörf umsækjanda fyrir hjálpartæki og bifreið.
  2. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, sem verður 5. mgr. og orðast svo:
    Að jafnaði skal ekki veittur styrkur vegna fatlaðra barna yngri en tíu ára. Í sérstökum tilfellum er heimilt að veita styrk vegna mikið fatlaðra barna yngri en tíu ára ef barnið þarf sannarlega sambærilega bifreið og fullorðinn einstaklingur í sambærilegri aðstöðu. Í þeim tilvikum skal m.a. horft sérstaklega til eðlis fötlunar barnsins, hvort að það sé óvenju hávaxið og/eða þungt miðað við aldur og hvort að barnið er óvenju háð fyrirferðarmiklum hjálpartækjum á meðan að það er í bifreiðinni.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. nóvember 2015.

Velferðarráðuneytinu, 30. október 2015.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 3. nóvember 2015