Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 961/2021

Nr. 961/2021 26. ágúst 2021

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 650/2021 um skyldu flugrekenda til að kanna vottorð vegna COVID-19 í millilandaflugi.

1. gr.

1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Öllum flugrekendum/umráðendum loftfara er skylt að kanna hvort farþegi hafi fullnægt skyldu til forskráningar og hafi tilskilið viðurkennt vottorð um ónæmisaðgerð gegn COVID-19 (SARS-CoV-2), vottorð um að COVID-19 (SARS-CoV-2) sýking sé afstaðin eða vottorð eða staðfestingu á neikvæðri niðurstöðu prófs á COVID-19 (SARS-CoV-2) áður en farið er um borð í loftfar, enda hafi slík skylda verið lögð á farþega á grundvelli sóttvarnalaga, sbr. reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19, eins og hún er á hverjum tíma. Vottorð eða staðfesting á neikvæðri niðurstöðu COVID-19 prófs skal vera kjarnsýrupróf (PCR-próf) sem er ekki eldra en 72 klst. Skyldur flugrekenda/umráðenda loftfara til að kanna hvort farþegi hafi framan­greind vottorð eða staðfestingu nær aðeins til þess að staðreyna nafn farþega á vottorði eða staðfest­ingu og gildis- og útgáfutíma skjals, ef við á, og kanna hvort vottorð eða staðfesting beri með sér yfirbragð þess að vera vottorð eða staðfesting í samræmi við fyrirmæli heilbrigðisyfirvalda.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í bráðabirgðaákvæði, sbr. 2. mgr. 1. gr., og 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, og tekur gildi frá og með 1. september 2021 kl. 00.00 að alþjóðlegum staðaltíma (UTC) og gildir til 31. desember 2021 kl. 23.59 að alþjóðlegum staðal­tíma (UTC).

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. ágúst 2021.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. ágúst 2021