Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 521/2025

Nr. 521/2025 6. maí 2025

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sýrland, nr. 456/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

 

1.46

Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/406 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á ákvörðun 2013/255/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Sýrlandi, sbr. fylgiskjal 1.46.

 

2.54

Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/407 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi, sbr. fylgiskjal 2.54.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 30. apríl 2025.

 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

 


B deild - Útgáfud.: 20. maí 2025