1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 254/2024 frá 6. desember 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/771 frá 29. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 152/2009 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna opinbers eftirlits með fóðri. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 23.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|