Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1583/2022

Nr. 1583/2022 27. desember 2022

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu kattar skal greiða skráningargjald kr. 3.318.

 

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna kattar kr. 6.632. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar og eftirlits. Ef staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd er framvísað lækkar gjaldið um 50%.

 

3. gr.

Af köttum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 12. gr. samþykktar um kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 1361/2019 skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef köttur er ekki örmerktur samkvæmt 8. gr. sömu sam­þykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

 

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs kattar ber að innheimta kr. 6.632 vegna handsömunar og kr. 1.047 fyrir hvern dag sem köttur er vistaður í kattageymslu fyrir fóður og vistun. Gjald fyrir örmerkingu kattar fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, sbr. kafla XVI, auk reglugerðar nr. 941/2002 um hollustuhætti og samþykkt um katta­hald í Dalvíkurbyggð nr. 1361/2019, öðlast gildi við birtingu.

 

6. gr.

Gjaldskráin uppfærðist haustið 2021 og hækkaði um 9% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.

Samþykkt í umhverfis- og dreifbýlisráði Dalvíkurbyggðar 24. október 2022 og í sveitarstjórn Dalvíkur­byggðar 29. nóvember 2022.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2023 og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 1524/2021 úr gildi.

 

Dalvíkurbyggð, 27. desember 2022.

 

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2022