1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvors þeirra endurskoðuð eigi síðar en 15. desember 2021:
- Frakt flutningsmiðlun ehf.
- Samskipti ehf.
2. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins, að Hilda ehf. skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 31. desember 2019.
3. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftirtalinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:
- Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf.
- ePóstur ehf.
- Tern Systems ehf.
4. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 14. maí 2019.
Katrín Jakobsdóttir.
Ágúst Geir Ágústsson.
|