1. gr.
Við skráningu kattar skal greiða skráningargjald kr. 2.850. Fyrstu 6 mánuði frá staðfestingu gjaldskrár þessarar er skráningin gjaldfrjáls.
2. gr.
Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna kattar kr. 5.696. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar en ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar gjaldið um 50%.
3. gr.
Af köttum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 12. gr. samþykktar um kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 17/2013 skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef köttur er ekki örmerktur samkvæmt 8. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.
4. gr.
Við afhendingu handsamaðs kattar ber að innheimta kr. 5.696 vegna handsömunar og kr. 900 fyrir fóður og vistun hvern dag sem köttur er vistaður í kattageymslu. Gjald fyrir örmerkingu kattar fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.
5. gr.
Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 181/2019.
6. gr.
Gjaldskrá þessi helst óbreytt milli ára 2019 og 2020 samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar í nóvember 2019. Öll gjöld samkvæmt gjaldskránni miðast við neysluvísitölu, grunnur 1988, september 2019 (470,5 stig) sem uppreiknast í september ár hvert miðað við gildandi neysluvísitölu.
Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 13. nóvember 2019.
Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 29. nóvember 2019.
Dalvík, 17. desember 2019.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
|