Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1352/2011

Nr. 1352/2011 22. desember 2011
REGLUR
um Vinnumatssjóð Háskólans á Akureyri.

1. gr.

Félagsmenn í Félagi háskólakennara við Háskólann á Akureyri (FHA) sem falla undir mats­kerfi kennara1eiga kost á greiðslum fyrir nýsköpun og árangur í rannsóknum umfram ákveðinn þröskuld á liðnu almanaksári. Skulu þeir hafa skilað inn stiga­mats­skýrslu til stjórnsýslu rannsókna eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Vinnumats­nefnd skipuð af matskerfisnefnd opinberra háskóla ber ábyrgð á matinu. Ekki er greitt úr Vinnumatssjóði fyrir áunnin stig vegna lokaritgerða2, tilvitnana eða styrkja úr samkeppnissjóðum.
__________
1 Með kennurum er átt við eftirfarandi starfsheiti: aðjúnkt, lektor og dósent.
2 Þeir sem telja fram doktorsritgerð til vinnumats á árunum 2012, 2013 og 2014 vegna starfa á árinu á undan eru undanþegnir þessari reglu.

2. gr.

Háskólaráð ákveður framlög í Vinnumatssjóð með hliðsjón af fjárveitingu í fjárlögum. Einungis eru tekin til mats þau ritverk sem eru merkt Háskólanum á Akureyri.

3. gr.

Greiðslur fyrir hvert rannsóknastig úr Vinnumatssjóði taka mið af starfshlutfalli hvers og eins. Þannig fær starfsmaður í hálfu starfi greiddan helming á við þann sem er í fullu starfi fyrir hvert rannsóknastig umfram ákveðinn þröskuld.

4. gr.

Við útreikning á rannsóknaframlagi félagsmanna í fullu starfi með 40% rannsóknaskyldu skal miðað við 7 stiga þröskuld. Greitt skal fyrir rannsóknastig umfram 7 stiga þröskuld fyrir aðjúnkta, lektora og dósenta í fullu starfi við HA. Þröskuldur félagsmanns í hálfu starfi er helmingur á við starfsmann í fullu starfi eða 3,5 stig. Árleg vinnuskylda þeirra sem eru með 100% rannsóknaskyldu miðast við 14 stig og annarra hlutfallslega þar á milli. Þannig miðast árleg vinnuskylda þeirra sem eru með 60% rannsóknaskyldu við 9,33 stig. Starfi kennari við tvær eða fleiri háskólastofnanir getur hann ekki fengið tvígreitt fyrir sömu ritverk.

5. gr.

Árlegt mat skal liggja fyrir í síðasta lagi 15. júní og skal Háskólinn á Akureyri úthluta greiðslum úr sjóðnum 1. september ár hvert. Félagsmaður úr Félagi háskólakennara á Akureyri getur fengið greitt úr sjóðnum á árinu eftir að hann hættir störfum við skólann vegna rannsókna sem unnar eru á því ári sem hann lætur af störfum.

6. gr.

Reglur þessar eru settar á grundvelli 20. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009. Þær öðlast gildi 1. janúar 2012 vegna starfa á árinu 2012. Jafnframt falla þá úr gildi reglur nr. 157/2008.

Háskólanum á Akureyri, 22. desember 2011.

Stefán B. Sigurðsson rektor.

Sigurður Kristinsson,     
varaforseti háskólaráðs.

B deild - Útgáfud.: 3. febrúar 2012