Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 420/2023

Nr. 420/2023 13. apríl 2023

SAMÞYKKT
um hænsnahald á Akranesi.

1. gr.

Gildissvið og markmið.

Samþykkt þessi gildir um hænsnahald á Akranesi.

Samþykktin er sett til að tryggja öryggi, góða hollustuhætti, góða umgengni og fullnægjandi mengunarvarnir vegna hænsnahalds á Akranesi.

Matvælastofnun fer með mál er varða lög um velferð dýra samkvæmt lögum nr. 55/2013, um velferð dýra.

 

2. gr.

Leyfisveitingar.

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar í umboði bæjarstjórnar Akraness annast útgáfu leyfa. Skipulags- og umhverfissvið skal við afgreiðslu leyfis leita umsagnar byggingarfulltrúa sé þess þörf.

Sækja skal um leyfi fyrir hænsnahaldi í þjónustuveri á bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar eða á vefsíðu sveitarfélagsins, www.akranes.is, á þar til gerðum eyðublöðum áður en hænsnahald hefst.

Skilyrði til leyfisveitinga eru:

  1. að tilskilin leyfi byggingar- og skipulagsyfirvalda liggi fyrir nema að skilyrði í f-lið í 2.3.5. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 séu uppfyllt,
  2. ef um fjöleignarhús er að ræða skal liggja fyrir samþykki húsfélags. Sé um að ræða lóð eða fasteign í óskiptri sameign skal samþykki sameigenda liggja fyrir. Sé umsækjandi leigjandi skal fylgja samþykki leigusala,
  3. að hænsnahald hafi ekki verið sérstaklega bannað eða þinglýstar kvaðir séu á fasteignum þar að lútandi,
  4. að umsækjandi hafi ekki gerst brotlegur við lög um velferð dýra eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra,
  5. að umsækjandi sé lögráða og hafi lögheimili á Akranesi.

Leyfilegt er að halda allt að sex hænsni á hverri lóð. Óheimilt er með öllu að halda hana.

 

3. gr.

Lausaganga.

Almenn lausaganga hænsna er bönnuð en þar sem þannig háttar til og ekki er hætta á að hænur valdi nágrönnum ónæði er ekki amast við henni. Leyfishafi er að öllu leyti ábyrgur fyrir hænsnum sínum og ber að koma í veg fyrir að hænsnahaldið valdi ónæði í umhverfinu, svo sem vegna hávaða, ólyktar og hvers konar óþrifnaðar.

 

4. gr.

Hænsnakofar.

Á lóðum þar sem veitt er leyfi til hænsnahalds skal vera hæfilega stór kofi sem rúmar þann fjölda hænsna sem leyfið er veitt fyrir. Kofi fyrir sex hænur þarf að vera að lágmarki 3 m² að stærð. Í kringum hænsnakofa skal vera hænsnahelt gerði, hæfilega stórt fyrir útiveru hænsna. Hænsnakofi og gerði skulu vera vel innan lóðamarka viðkomandi lóðar. Kofi skal vera meindýraheldur og fóður skal geyma í meindýraheldum ílátum. Leyfishafa ber að gera ráðstafanir til að tryggja að meindýr komist ekki í fóður.

Um byggingarleyfi fyrir hænsnakofa og girðingar við þá fer samkvæmt ákvæðum byggingar­reglugerðar.

 

5. gr.

Ónæði og þrif.

Til að koma í veg fyrir ónæði vegna hávaða ber að hafa myrkur hjá hænsnum frá kl. 21.00 til kl. 7.00 alla daga.

Leyfishafa ber að sjá til þess að kofinn sé þrifinn svo skítur safnist ekki upp. Hænsnaskít skal farga eða nýta á löglegan hátt. Hænsnaskít skal koma fyrir í lokuðum umbúðum þannig að hann valdi ekki lyktarmengun. Þegar hænsnaskítur er nýttur sem áburður skal plægja hann niður þannig að hann liggi ekki á yfirborðinu. Ef ekki er unnt að nýta skít skal flytja hann í lokuðum umbúðum á móttöku­stöð fyrir lífrænan úrgang.

Leyfishafa ber að sjá til þess að hænsnahaldið laði ekki að meindýr.

 

6. gr.

Afturköllun leyfis.

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar getur afturkallað leyfi til hænsnahalds sam­kvæmt samþykkt þessari ef leyfishafi brýtur ákvæði laga um velferð dýra eða ákvæði samþykktar þessarar.

 

7. gr.

Sjúkdómar.

Komi upp sjúkdómar eða smithætta sem að mati sóttvarnalæknis og yfirdýralæknis geta skapað hættu fyrir heilbrigði manna, ber að hætta hænsnahaldi tafarlaust og farga hænsnum í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.

 

8. gr.

Eftirlit.

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar fer með framkvæmd samþykktarinnar í umboði heilbrigðisnefndar.

Kvörtunum vegna hænsnahalds skal vísa til dýraeftirlits Akraneskaupsstaðar til úrlausnar með vísan til samþykktar þessarar.

Eftirlit með því að ákvæðum samþykktar þessarar sé framfylgt er í höndum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

9. gr.

Þvingunarúrræði.

Um þvingunarúrræði og viðurlög við brotum gegn ákvæðum samþykktar þessarar fer sam­kvæmt XVII. og XIX. kafla laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

10. gr.

Heimild til gjaldtöku.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er heimilt að setja gjaldskrá vegna leyfis til hænsnahalds í sam­ræmi við ákvæði 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í gjaldskrá skal kveðið á um leyfis- og eftirlitsgjöld og kostnað leyfishafa vegna annarra gjaldaliða sem leiða af samþykkt þessari. Við ákvörðun gjaldskrár skal tekið mið af launa-, efnis- og umsýslukostnaði og öðrum kostnaði sem fellur til vegna hvers gjaldaliðar samkvæmt rekstraráætlun til að standa straum af kostnaði við að framfylgja samþykkt þessari.

Gjöld vegna aðkomu heilbrigðiseftirlits greiðast samkvæmt gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Vestur­lands.

 

11. gr.

Úrskurðarnefnd.

Um kæruheimildir til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna samþykktar þessarar fer skv. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

12. gr.

Staðfesting.

Samþykkt þessi sem samþykkt var af heilbrigðisnefnd Vesturlands 7. desember 2022,  skipu­lags- og umhverfisráði Akraness 12. desember 2022, bæjarráði Akraness 16. desember 2022 og bæjar­stjórn Akraness 29. desember 2022 staðfestist hér með skv. 2. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi.

 

Ákvæði til bráðabirgða.

Þeim sem samþykkt þessi gildir um er veittur 60 daga frestur frá gildistöku hennar til aðlögunar að ákvæði 4. mgr. 2. gr. samþykktarinnar um heimilaðan hámarksfjölda hænsna á hverri lóð og að óheimilt sé með öllu að halda hana.

 

Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu, 13. apríl 2023.

 

F. h. r.

Íris Bjargmundsdóttir.

Trausti Ágúst Hermannsson.


B deild - Útgáfud.: 28. apríl 2023