Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1307/2023

Nr. 1307/2023 29. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (16.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 72.-74. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2580 frá 13. nóvember 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr ali­fuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2629 frá 20. nóvember 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr ali­fuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2612 frá 23. nóvember 2023 um breytingu á II., III. og XIII. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum hóf- og klaufdýrum og nýju kjöti af þeim til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir (ESB) 2023/2580, (ESB) 2023/2629 og (ESB) 2023/2612 eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 15/2023.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2023