1. gr.
1. mgr. 6. gr. reglnanna verður svohljóðandi:
Í framkvæmdastjórn háskólans eiga sæti rektor háskólans sem er í forsæti, forsetar skóla hafi þeir verið ráðnir, framkvæmdastjóri háskólans sem og forsetar fræðasviða. Þá sitja forstöðumaður fjármála og gæðastjóri framkvæmdastjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt.
2. gr.
Reglur þessar, samþykktar af háskólaráði 17. desember 2015, eru settar með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 17. desember 2015.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
Sigrún Stefánsdóttir, varaforseti háskólaráðs.
|