1. gr.
Á eftir b-lið 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem verður c-liður, og orðast svo:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/414 frá 9. janúar 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB að því er varðar auðkenningu tiltekinna hluta búnaðar um borð í skipum sem mögulegt er að merkja með rafrænum hætti.
2. gr.
Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. september 2018.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Björn Freyr Björnsson.
|