Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 640/2018

Nr. 640/2018 5. júní 2018

GJALDSKRÁ
Veitna ohf. fyrir heitt vatn.

1. gr.

Almennt.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir heitt vatn á veitusvæðum Veitna ohf. Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af heitu vatni, 2% af smásöluverði. Heimilt er að miða innheimtu skattsins við áætlaða sölu. Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, 11% af vatni til húshitunar og laugarvatns en 24% til annarra nota.

Á veitusvæðum gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli.

2. gr.

Almennir taxtar, mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A-C Einingaverð Sala í þéttbýli 129,26 2,59 146,35 kr./m³
J1A-C Einingaverð Sala í dreifbýli 170,59 3,41 193,14 kr./m³

Taxtarnir gilda fyrir alla húshitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Heitt vatn er selt samkvæmt rúmmetramælingu.

Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu heits vatns.

Veitum ohf. er ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhend­ingar­stað enda geri Veitur ohf. þær ráðstafanir sem má ætlast til af henni til að halda hita­stiginu í eðlilegu horfi.

Sækja skal skriflega um alla taxta aðra en ofangreinda taxta.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

3. gr.

Almennir taxtar, fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 42,62 0,85 48,25 kr./dag
H1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 89,05 1,78 100,82 kr./dag
H1C Fast verð C: 65 mm og stærri 180,46 3,61 204,32 kr./dag
             
Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 48,25 0,97 54,63 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 100,58 2,01 113,87 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 203,56 4,07 230,47 kr./dag

Fast verð er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er háð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

4. gr.

Gróðurhús og sundlaugar.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H3A-C Einingaverð Gróðurhús 64,61 1,29 73,15 kr./m³
H4A-C Einingaverð Sundlaugar 64,31 1,29 73,15 kr./m³

Skýringar:

Taxtar H3 og H4 varða ekki forgangsvatn. Taxtarnir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Veitna ohf.

H4 taxtinn gildir fyrir sundlaugar, set- og vaðlaugar. Heimilt er að tengja baðvatn þessum taxta ef sundlaugin er aðalþáttur í starfsemi kaupanda.

H3 taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni.

5. gr.

Snjóbræðsla, fiskeldi, íþróttavellir utanhúss og iðnaðarvatn í framleiðsluferla.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 24% vsk. Grunnur
V1A-C Einingaverð Snjóbræðsla 129,26 2,59 163,49 kr./m³
V2A-C Einingaverð Fiskeldi 64,61 1,29 81,72 kr./m³
V3A-C Einingaverð Íþróttavellir, utanhúss 97,05 1,94 122,75 kr./m³
V4A-C Einingaverð Iðnaðarvatn í framleiðsluferla 64,61 1,29 81,72 kr./m³

Skýringar:

Taxtar V1 til V4 varða ekki forgangsvatn. Þeir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Veitna ohf.

V1 taxtinn gildir fyrir sértengt snjóbræðslukerfi.

V2 taxtinn gildir fyrir fiskeldisfyrirtæki í framleiðslu.

V3 taxtinn gildir fyrir upphitaða íþróttavelli utanhúss.

V4 taxtinn gildir fyrir atvinnustarfsemi sem nýtir heitt vatn beint í framleiðsluferla. Taxtinn gildir í engum tilvikum fyrir húshitun eða kranavatn.

5.1

Snjóbræðsla.

Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   541,49 10,83 684,88 kr./dag
S1 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en -5°C 64,61 1,29 81,72 kr./m³
S1 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en -5°C 193,88 3,88 245,22 kr./m³

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Veitur ohf. leggja til. Skilyrði að GSM-samband til fjarmælingar sé til staðar á afhendingarstað.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Veitur ohf. leggja til.

Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn með flatargjaldi (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   541,49 10,83 684,88 kr./dag
S12 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en -5°C 64,61 1,29 81,72 kr./m³
S12 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en -5°C 193,88 3,88 245,22 kr./m³
S12 Daggjald Fyrir hvern m² snjóbræðsluflatar 0,16 0,003 0,20 kr./m²

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Veitur ohf. leggja til. Skilyrði að GSM-samband til fjarmælingar sé til staðar á afhendingarstað.

Taxtinn miðast við að tvöfalt dreifikerfi sé til staðar hjá kaupanda. Daggjaldið er á hvern m² snjóbræðsluflatar.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Veitur ohf. leggja til.

6. gr.

Frístundahús – hemlataxtar.

Dreifbýli Taxti   Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Sumarhús
H1
Fast verð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 315,26 6,31 356,94 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra umfr. 3 l 63,06 1,26 71,40 kr./dag

Skýringar:

Gildir fyrir frístundahús á svæðum Austurveitu, Grímsnesveitu, Hlíðaveitu, Ölfusveitu, Skorra­dals­veitu, Munaðarnesveitu og Norðurárdalsveitu.

Hitaveituvatn til frístundahúsa er selt um hemil til takmörkunar á rennsli. Mínútulítri táknar það rennsli sem gefur 1 lítra af vatni á 1 mínútu.

Innifalið í grunnverði eru 3 mínútulítrar, sem er minnsta magn sem afhent er til sumarhúsa.

Hægt er að sækja um aukið vatnsmagn hvenær sem er en umsókn um minnkun er aðeins fram­kvæmd mánuðina apríl og maí ár hvert.

Hugsanlegt er að svæðisbundið sé ekki nægt vatn til að verða við óskum um að kaupa aukið vatnsmagn.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

7. gr.

Verðskrá fyrir Rangárveitu dreifbýli.

Samkvæmt reglugerð nr. 10/2012 um breytingu á reglugerð nr. 297/2006, um Orkuveitu Reykja­víkur með síðari breytingum, nær veitusvæði fyrirtækisins til Hellu og Hvolsvallar og nær­liggjandi sveita, eins og það veitusvæði er skilgreint í samningi frá 25. janúar 2005 milli Orku­veitu Reykjavíkur, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps. Í 3. mgr. 6. gr. reglu­gerðar um Orkuveitu Reykjavíkur segir einnig að í þeim tilvikum þar sem á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli skal skilgreining á milli þéttbýlis og dreifbýlis fylgja því hvernig viðkomandi sveitarfélag skilgreinir þéttbýli á aðalskipulagi. Ákvæði 7. gr. gjaldskrár þessarar gilda eingöngu fyrir dreifbýli á því svæði sem framangreindur samn­ingur tekur til. Önnur ákvæði gjaldskrárinnar, s.s. ákvæði 8. gr. um heimlagnir gilda einnig á því svæði eftir því sem við á.

7.1

Mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A-C Einingaverð Sala í dreifbýli 170,59 3,41 193,14 kr./m³

7.2

Fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 48,25 0,97 54,63 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 100,58 2,01 113,87 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 203,56 4,07 230,47 kr./dag

7.3

Íbúðarhús – blandaður taxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
HR5 Fast verð Grunndagverð 55,12 1,10 62,40 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra 62,91 1,26 71,23 kr./dag
Einingaverð Neysluvatn um rennslismæli 164,23 3,28 185,94 kr./m³

7.4

Frístundahús – hemlataxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1 Fast verð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 315,26 6,31 356,94 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra umfram 3 l 63,06 1,26 71,40 kr./dag

8. gr.

Heimlagnir – almennt.

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verð gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður sam­kvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseig­andi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Hús­eig­andi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

8.1

Heitt vatn – heimæðagjöld.

Neðangreint verð gildir í þéttbýli þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfir­lengdar­gjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn að höfðu samráði við Veitur ohf. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til hús­hit­unar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H1H 20 mm 322.107 357.539 399.413
H1H 25 mm 503.291 558.653 624.081
H1H 32 mm 824.593 915.298 1.022.495
H1H 40 mm 1.288.427 1.430.154 1.597.649
H1H 50 mm 2.013.166 2.234.614 2.496.326

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðagjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðagjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstak­lega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.2

Heitt vatn – bráðabirgðatengingar.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H2H 20 mm 96.633 107.263 119.825

Skýringar:

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raun­kostnað.

8.3

Heimæðagjöld í dreifbýli (lögbýli og heilsárshús).

Neðangreint verð gildir þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð
m.v. stál
Málstærð
m.v. PEX
Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H3H 20 mm 25 mm 418.740 464.801 519.238
H3H 25 mm 32 mm 654.279 726.250 811.306
H3H 32 mm   1.071.971 1.189.888 1.329.244
 

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðagjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðagjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð heimæða sverari en 32 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.4

Heimæðagjöld fyrir frístundahús (í samræmi við byggingarleyfi).

Neðangreint verð gildir í frístundahúsabyggðum þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 100 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð, skýring Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H4H 20 mm PEX heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð 607.048 673.823 752.740
H5H 20 mm PEX heimæð lögð samtímis og í sama skurði og kaldavatnsæð OR 427.412 474.427 529.991

Skýringar:

Heitavatnsheimæðar fyrir frístundahús eru lagðar með 20 mm PEX. Ósk um stærri heimæð fellur undir mat Veitna ohf. á styrk dreifikerfis og verði ósk samþykkt greiðir umsækjandi allan viðbótar­kostnað sem fylgir stærri heimæð og þ.m.t. styrkingu á aðveitu.

9. gr.

Merki frá mæli fyrir notanda.

Beiðni notanda um merki frá mæli til nota við eigið stjórn- eða upplýsingakerfi.

Taxti Skýring Án vsk kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H6H Tengigjald fyrir aðgang að púlsum frá mæli, uppsett tengidós 15.809 17.548 19.603
H7H Ótímabær mælaskipti, 15-20 mm 10.104 11.215 12.529
H8H Ótímabær mælaskipti, 25-50 mm 25.260 28.039 31.322
H9H Ótímabær mælaskipti, 65 mm 30.312 33.646 37.587

Skýringar:

Tengigjald er greitt fyrir aðgengi að merki frá mæli. Veitur ohf. setja upp tengidós sem er aðgengi­leg fyrir notanda að tengja við sinn búnað.

Þurfi að skipta um mæli þar sem mælir er ekki hæfur til að gefa frá sér merki þarf notandi að greiða fyrir mælaskipti og dýrari mæli til viðbótar við tengigjald.

Veitur ohf. taka enga ábyrgð á púlsútgangi eða notkun hans og vegna tækniþróunar mæla er ekki mögulegt að ábyrgjast að næsta mælitæki verði með sambærilegum útgangi.

10. gr.

Þjónustugjöld.

Texti Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
Seðilgjald 193   239
Tilkynningar- og greiðslugjald 92   114
Aukaálestur 5.127 5.691 6.357
Skipting orkureiknings ¹ 2.726 3.026 3.380
Innheimtuviðvörun ² 950    
Lokunargjald 6.408 7.113 7.946
Lokunargjald fyrir lokun að beiðni notanda.
Fyrir sumarhús, endurkoma vegna tengingar
eða útkall v/búnaðar notanda ³
18.494 20.528 22.933
Gjald fyrir opnun utan dagvinnutíma ⁴ 18.494 20.528 22.933
Gjald fyrir innheimtuaðgerð þar sem nauðsynlegt er að grafa niður á heimæð ⁵ 322.107 357.539 399.413

Skýringar:

¹ Þessi þjónusta er ekki lengur í boði. Gildir fyrir fyrri samþykktar skiptingar.
² 20 dögum eftir gjalddaga.
³ Lokunargjald ef notandi óskar eftir tímabundinni lokun.
   Gjald fyrir endurkomu þegar umsækjandi hefur ekki uppfyllt sín skilyrði við áhleypingu.
   Gjald fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði húseiganda.
   Sé leitað eftir þjónustu utan dagvinnutíma reiknast 55% álag.
⁴ Gjald fyrir opnun sem óskað er eftir að verði framkvæmd utan dagvinnutíma.
⁵ 25% álag reiknast á innheimtuaðgerð utan þéttbýlis.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 136/2013 um Orkuveitu Reykjavíkur og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, sbr. reglugerð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur nr. 297/2006, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1154/2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júní 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 21. júní 2018